Beðin um að hringja í viðhaldið í vinnunni

Saga Catalinu kom út árið 2010.
Saga Catalinu kom út árið 2010.

Farið var fram á gjaldþrotaskipti á félagi Catalinu Ncogo vegna vangoldinnar launakröfu starfsmanns sem hætti vegna ágreinings þeirra á milli. 

Kolbrún Eva Oddsdóttir, hóf störf í tískuverslun Catalinu, Miss Miss í Holtagörðum haustið 2013 en hætti í desember sama ár eftir að þær lentu í útistöðum. Þegar Kolbrún hætti taldi Catalina sig ekki þurfa að greiða henni laun fram að 19. desember þar sem hún hefði sagt upp störfum í miðjum mánuði. Leitaði Kolbrún þá til VR sem aðstoðaði hana í málinu.

Elías G. Magnússon, forstöðumaður kjaramálasviðs, staðfestir þá að VR hafi innheimt kröfuna fyrir Kolbrúnu auk þess sem lögmaður VR staðfestir að launakrafan hafi verið grundvöllur gjaldþrotaskiptabeiðninnar en hún hljóðaði uppá 154 þúsund krónur.

Krafan fékkst loks greidd úr þrotabúi félagsins Exclusi­ve Bout­ique C. Ncogo ehf. Í fyrra samtali við mbl sagðist Catalina hafa sett félagið í þrot til þess að losna undan leigusamningnum í Holtagörðum. Fyrr í vikunni sagði hún mbl  einnig frá áformum um að opna nýjar Miss Miss verslanir.

Sífellt hótað uppsögn

Kolbrún segist hafa verið ráðin til þess að vinna frá klukkan 11 til 18 en Catalina hafi hins vegar fljótt farið að láta hana vinna ýmis önnur störf sem ekkert viðkomu afgreiðslustörfum. „Og alltaf var það þannig að ef ég neitaði að gera hlutina varð hún brjáluð og hótaði að reka mig,“ segir Kolbrún. „Ég get ekki haft stelpu í vinnu hjá mér sem gerir ekki allt það sem ég segi henni að gera,“ segir Kolbrún og vísar í Catalinu. Kolbrún tók skjáskot af samskiptum þeirra og sendi bæði á Vinnumálastofnun og VR þegar mál hennar var til meðferðar. 

Samkvæmt samskiptunum þrábað Catalina Kolbrúnu um að hringja í meinta hjásvæfu kærasta hennar á þeim tíma og lét hana heyra það þegar hún slökkti á símanum til þess að komast undan bóninni. Þá bað Catalina hana einnig um að hafa fé af syni forseta Nýju-Gíneu eftir að hann sendi Catalinu vinabeiðni á Facebook. „Ég reyndi að fá hana af þessari hugmynd en henni fannst ekkert eðlilegra,“ segir hún. Þá segir hún Catalinu ekki hafa virt veikindarétt sinn og meðal annars hótað henni uppsögn ef hún mætti ekki veik til vinnu. 

Fékk loksins nóg

Kolbrún segist þá loks hafa fengið nóg þegar Catalina hugðist halda konukvöld í versluninni en ætlaðist til þess að Kolbrún myndi sjá launalaust um það. „Ástæðan fyrir því að ég lét þetta yfir mig ganga í þennan tíma var sú að ég þarf að vera með tekjur til að halda íbúðinni og mér sjálfri uppi. Hún hótaði alltaf að reka mig ef ég gæti ekki gert hitt eða þetta svo það var lítið annað í stöðunni en að hlýða og aldrei fékk ég borgað neitt aukalega fyrir það sem ég gerði utan vinnutíma,“ segir Kolbrún.

Exclusi­ve Bout­ique C. Ncogo ehf. var tekið til gjaldþrota­skipta þann 30. októ­ber 2014 en skiptum á búinu er ekki lokið. 

Líkt og áður hef­ur verið greint frá var Ca­tal­ina dæmd í 2½ árs fang­elsi í Héraðsdómi Reykja­ness í des­em­ber 2009 fyr­ir hag­nýt­ingu vænd­is og fíkni­efna­brot. Hæstirétt­ur þyngdi þann dóm hins veg­ar í 3½ ár í júní 2010. Þá var hún einnig dæmd í 15 mánaða fang­elsi í júlí 2010 fyr­ir milli­göngu um vændi, lík­ams­árás og brot gegn vald­stjórn­inni og var dóm­ur­inn hegn­ing­ar­auki við fyrri dóm. Ca­tal­ina var hins veg­ar sýknuð af ákærðu fyr­ir man­sal.

Hún sat inni í tvö ár í kvennafang­els­inu í Kópa­vogi og var lát­in laus í júní 2011.

Miss Miss var í Holtagörðum.
Miss Miss var í Holtagörðum. Árni Sæberg
Kolbrún fékk launin loks greidd fyrr í mánuðinum.
Kolbrún fékk launin loks greidd fyrr í mánuðinum. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK