CCP tapaði níu milljörðum

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP

Tap íslenska tölvuleikjaframleiðandans CCP jókst um tæpa sex milljarða milli ára og nam alls rúmum 8,7 milljörðum íslenskra króna á síðasta ári. Tekjur drógust saman, skuldir jukust og starfsmönnum var fækkað.

Samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins námu tekjur félags um 68,5 milljónum dollara eða 9,1 milljarði króna, og drógust saman um einn milljarð króna milli ára. Nánast allar tekjur fyrirtækisins koma frá viðskiptavinum utan Íslands að því er fram kemur í nýbirtum ársreikningi.

Leikjaþróunarkostnaður jókst töluvert milli ára, eða um tæpa fjóra milljarða króna, og nam tæpum 11,5 milljörðum króna.

Bíða eftir gleraugum

Líkt og mbl hefur áður greint frá er nýjasti leikurinn frá CCP, EVE: Valkyrie, tilbúinn til útgáfu, en hins vegar er beðið eftir nauðsynlegri tækni til þess að hægt sé að spila hann. Leik­ur­inn er einn af þeim fyrstu í heimi sem þróaðir eru fyr­ir nýja tækni í sýnd­ar­veru­leika þar sem spil­ar­inn þarf að vera með þrívídd­argler­augu. Þau eru hins vegar ekki komin út.

„Það voru marg­ir að von­ast til þess að gler­aug­un kæmu út í lok síðasta árs, en svo varð ekki,“ sagði Eld­ar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP í samtali við mbl í mars sl.. „Við bíðum áfram eft­ir út­gáfu­deg­in­um,“ sagði hann.

Stöðugildum fækkað um 106

Eignir CCP drógust mikið saman milli ára eða um 9,5 milljarða króna og námu 4,4 milljörðum, samanborið við 13,9 milljarða á síðasta ári.

Eigið fé var neikvætt um rúma tvö milljarða króna. 

Líkt og fyrr segir var CCP einnig rekið með tapi á síðasta ári, þótt það hafi verið mun minna. Í samtali við mbl í vor sagði Eldar að fyr­ir­tækið hefði kom­ist ágæt­lega frá erfiðum tím­um.

Í ársreikningnum kemur fram að stöðugildum hjá CCP hafi verið fækkað úr 537 í 431. Stöðunum hefur því alls fækkað um 106. Líkt og áður hefur verið greint frá voru 27 starfs­menn í höfuðstöðvun­um í Reykja­vík látnir fara en í samtali við mbl í mars sagði Eld­ar að ekki væri von á frek­ari upp­sögn­um. 

Björgólfur stór hluthafi

CCP á fimm dótturfélög, þar af er eitt íslenskt, CCP GI hf., eitt bandarískt, tvö bresk og annað í Sjanghæ.

Hluthafar félagsins eru alls 434 talsins og eru margir þeirra starfsmenn, þar sem þeim býðst jafnan kaupréttur á hlutabréfum. Stærsti hluthafinn er hins vegar félgið NP ehf. Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, á 45% hlut í því félagi, auk þess sem Novator ehf., á beint 0,3% hlut til viðbótar. Eigandi 55% hlutar í NP ehf. er félagið ALMC, sem er gamli Straumur.

Næst stærsti hluthafinn er Teno Investments S.Á.R.L, sem er í eigu bandaríska fjárfestingarsjóðsins General Catalyst Partners.

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, á 5,22% hlut.

Ekki náðist í stjórnendur CCP við vinnslu fréttarinnar.

Frétt mbl.is: CCP bíður eftir gleraugum

Ekki hefur verið tilkynnt um útgáfudag EVE Valkyrie. Leikurinn mun …
Ekki hefur verið tilkynnt um útgáfudag EVE Valkyrie. Leikurinn mun koma út á PlayStation 4 fyrir nýjan sýndarveruleikabúnað SONY (Morpheus) og Oculus Rift sýndarveruleikagræju Oculus VR fyrir PC tölvur. mynd/CCP
CCP bíður eftir að sýndarveruleikagleraugun komi út.
CCP bíður eftir að sýndarveruleikagleraugun komi út. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK