Opna á erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða

Lífeyrissjóðir geta nú fjárfest takmarkað í erlendum gjaldeyri.
Lífeyrissjóðir geta nú fjárfest takmarkað í erlendum gjaldeyri. mbl.is/afp

Seðlabanki Íslands fyrirhugar að veita lífeyrissjóðum undanþágu frá gjaldeyrishöftum til að fjárfesta erlendis fyrir 10 milljarða á þessu ári. Er þetta í samræmi við áætl­un rík­is­stjórn­ar­inn­ar um los­un fjár­magns­hafta sem kynnt var í síðasta mánuði. Í tilkynningu kemur fram að lífeyrissjóðir geti nú sótt um til Seðlabankans vilji þeir fjárfesta í erlendum gjaldeyri.

Samanlagt mun heimild þessar aðila nema 10 milljörðum og kemur fjárfestingarheimildin til með að skiptast milli þeirra með þeim hætti að annars vegar verður horft til stærðar sem fær 70% vægi og hins vegar verði horft til hreins innstreymis sem fær 30% vægi. Útreikningurinn byggir á upplýsingum úr nýjustu ársreikningabók Fjármálaeftirlitsins um lífeyrissjóði, þ.e. tölum frá árinu 2013. Mun undanþága miðast við að heimild hvers aðila gildi til loka þessa almanaksárs. 

Segir í tilkynningunni að gjaldeyrisinnstreymi að undanförnu og minni óvissa um þróun greiðslujafnaðar í framhaldi af setningu laga á Alþingi sem lúta að uppgjöri búa fallinna fjármálafyrirtækja skapi þetta svigrúm. Í slíkum fjárfestingum felst þjóðhagslegur ávinningur þar sem lífeyrissjóðunum er gert mögulegt að bæta áhættudreifingu í eignasöfnum á sama tíma og dregið er úr uppsafnaðri erlendri fjárfestingarþörf lífeyrissjóðanna þegar fjármagnshöft verða leyst. Þar með er dregið úr hættu á óstöðugleika í kjölfar losunar fjármagnshafta, segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK