Irwin Lipkin, síðasti sakborningurinn í málum sem tengjast fjársvikaranum Bernard Madoff, var dæmdur í fangelsi í gær. Hann aðstoðaði Madoff við að skipuleggja stærsta pýramídasvindl sögunnar auk þess að hafa leynt upplýsingum fyrir yfirvöldum.
Réttarhöld í málum Madoffs hafa tekið sex ár en um fimmtán manns hafa verið sakfelldir fyrir að aðstoða Madoff. Lipkin var einn af fyrstu starfsmönnum Madoffs, en þeir hófu samstarf á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann bað dómarann afsökunar í gær.