Hafna kröfu um hluthafafund

Lóðin sem Landsbankinn hyggst byggja á.
Lóðin sem Landsbankinn hyggst byggja á. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Landsbankinn segir í svarbréfi sínu til Vesmannaeyjabæjar að bankinn telji ekki að svo komnu máli að ástæða sé eða tímabært að fjalla um fyrirhugaða nýbyggingu bankans á sérstökum hluthafafundi. Þetta kemur fram í bréfi bankastjóra og formanns bankaráðs sem mbl.is hefur undir höndum.

Vestmannaeyjabær hafði farið þess á leit að haldinn yrði hluthafafundur í tilefni nýbyggingar bankans, en bærinn á hlut í bankanum.

Í bréfinu segir að fram hafi komið að núverandi húsnæðiskostur Landsbankans henti bankanum ekki, og að mikil hagræðing muni nást fram með byggingunni. Þá hafi áform bankans legið fyrir á síðustu tveimur aðalfundum bankans. Eftir íterlega athugun bankans hafi niðurstaðan orðið að sú lóð sem bakninn hyggst byggja á væri hagkvæmasti kosturinn.

Samkvæmt heimildum mbl.is hefur Bankasýsla ríkisins ekki tekið ákvörðun um hvort hún muni boða til hluthafafundar, en hún fer með hlut ríkisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK