Samið um lokauppgjör Icesave

Samið hefur verið um lokauppgjör Icesave.
Samið hefur verið um lokauppgjör Icesave. Ómar Óskarsson

Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta (TIF), Hollenski seðlabankinn (DNB) og Breski innstæðutryggingasjóðurinn (FSCS) hafa náð samningum um lokauppgjör krafna sem stafa frá innstæðum sem Landsbanki Íslands hf. (nú LBI hf.) safnaði í útibúum sínum í Amsterdam annars vegar og London hins vegar undir vörumerkinu Icesave.

Samningurinn felur í sér að TIF greiddi mótaðilum sínum samtals 20 milljarða íslenskra króna. Fjárhæðin var greidd með hluta þeirra fjármuna sem eru nú þegar til staðar í B deild TIF.

Í B deild eru vistaðir fjármunir sem að mestu leyti var safnað fyrir bankahrunið í október 2008. Seðlabanki Íslands veitti undanþágu frá gjaldeyrishöftum að því marki sem þurfti til að unnt væri að inna greiðslur af hendi.

DNB og FSCS hafa, líkt og aðrir forgangskröfuhafar hjá LBI hf. fengið greiðslur frá LBI hf. sem nema alls um 85% af höfuðstól krafna. Gert er ráð fyrir að forgangskröfuhafar muni endurheimta höfuðstól krafna að fullu frá LBI hf.

Í tilkynningu er haft eftir Guðrúnu Þorleifsdóttur, formanni stjórnar TIF að hún sé mjög ánægð með að TIF skyldi lánast að ná samningum um lokafrágang Icesave skuldbindinganna með greiðslu sem er vel viðráðanleg fyrir TIF og sanngjörn gagnvart öllum aðilum ágreiningsins.

Þá segir að samningurinn geri TIF kleift að einbeita sér að megin hlutverki sínu; að veita neytendum og öðrum innstæðueigendum á Íslandi tryggingu á innstæðum sínum.

Samninganefnd TIF var skipuð Guðrúnu Þorleifsdóttur, formanni stjórnar TIF, Brynjari Kristjánssyni, framkvæmdastjóra TIF og Gunnari Viðar hdl. frá LEX lögmannsstofu.

Fengu undanþágur frá höftum

Til að greiða fyrir samkomulaginu og gera fullnustu þess mögulega veitti Seðlabanki Íslands þrjár undanþágur frá fjármagnshöftum.

Tvær undanþágur lutu að krónuinnstæðum að fjárhæð 9,5 milljarða króna sem tengdust greiðslum til DNB og FSCS úr LBI.

Ein undanþága var til TIF sem laut að greiðslu 20 milljarða króna til DNB og FSCS.

Til að fullnusta uppgjörið átti Seðlabankinn þátt í gjaldeyrisviðskiptum sem fólu í sér að 22,1 milljörðum króna í íslenskum krónum var skipt í erlendan gjaldeyri og hann greiddur til DNB og FSCS. Þá var 7,4 milljarða króna gjaldeyrisinnstæða TIF hjá Seðlabankanum greidd til sömu aðila. Samtals lækkaði gjaldeyrisforði Seðlabankans um 29,5 milljarða af þessum sökum.

Á myndinni má sjá Má Guðmundsson seðlabankastjóra og Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, …
Á myndinni má sjá Má Guðmundsson seðlabankastjóra og Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, undirrita undanþágur TIF vegna Icesave-samninganna.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK