„Þetta eru alvarlegar ásakanir“

Jón Helgi Egilsson, hagfræðingur og varaformaður bankaráðs Seðlabanka Íslands.
Jón Helgi Egilsson, hagfræðingur og varaformaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. mbl.is/Ómar Óskarsson

Bankaráð Seðlabanka Íslands mun taka bréf Samherja fyrir á fundi á næstunni. Ekki er víst hvort því verði komið fyrir í dagskránni í næstu viku eða hvort farið verði yfir það á fundi eftir tvær vikur. Þetta segir Jón Helgi Egilsson, varaformaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, en líkt og fram hefur komið hefur formaður bankaráðs, Þórunn Guðmundsdóttir, lýst sig vanhæfa til þess að fjalla um málið.

Samherji er viðskiptavinur lögmannstofu hennar, Lex, og mun hún því ekki tjá sig um málið.

Líkt og greint var frá í gær hefur stjórn Sam­herja hf. óskað eft­ir því að bankaráð hlut­ist til um að „fram fari at­hug­un á stjórn­sýslu bank­ans, banka­stjórn­ar og annarra starfs­manna, að því er snert­ir gjald­eyris­eft­ir­lit, einkum og sér í lagi í tengsl­um við hús­leit, rann­sókn, sam­skipti, kær­ur og fjöl­miðlaum­fjöll­un af hálfu Seðlabanka Íslands um mál­efni Sam­herja“.

„Ég á von á því að menn skoði þetta ítarlega af því þetta eru alvarlegar ásakanir,“ segir Jón Helgi en bætir við að ekki sé tímabært að tjá sig um það hvernig athugun sem þessi myndi fara fram. Hann bendir á að frumvarp um breytingu á lögum um Seðlabanka Ísland liggi þegar fyrir Alþingi. „Það tekur á ýmsum þáttum í rekstri bankans,“ segir hann. 

Atkvæðagreiðsla um umdeild málefni

„Það verður að skoða þetta í heildarsamhenginu. Ef niðurstaðan verður sú að eitthvað hafi farið úrskeiðis í þessu máli þarf að tryggja að það gerist ekki aftur. En ég get ekkert sagt til um það. Við eigum eftir að fá útskýringar frá seðlabankastjóra og gjaldeyriseftirlitinu um þær ásakanir sem þarna koma fram,“ segir hann. 

Aðspurður hvort bankaráð muni greiða atkvæði um hvort hefja eigi athugun á málinu segir Jón Helgi að vinnuferlið sé misjafnt. „Ef það eru umdeild mál hefur komið til þess að menn greiði atkvæði en við sjáum bara til.“

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK