Ólafur Nielsen framkvæmdastjóri Kolibri

Ólafur Örn Nielsen
Ólafur Örn Nielsen

Ólafur Örn Nielsen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kolibri. Hann tekur við starfinu af Pétri Orra Sæmundsen sem verður stjórnarformaður. Ólafur hefur verið sölu- og markaðsstjóri Kolibri frá árinu 2014 en fyrirtækið sérhæfir sig í að hjálpa stærri fyrirtækjum að þróa hugbúnaðarlausnir.

Ólafur hefur starfað við stafræna vöruþróun í rúman áratug, m.a. sem framkvæmdastjóri Form5 og vefmarkaðsstjóri hjá WOW air. Þar áður starfaði hann m.a. við vöruþróun hjá mbl.is. Þá situr Ólafur í stjórn ÍMARK, félags markaðsfólks á Íslandi.

Í tilkynningu er haft eftir Ólafi að síðasta ár hafi verið metár í rekstri félagsins og að gaman verði að fylgja eftir stærri og flóknari verkefnum þar sem þjónustan hafi verið í mjög örri þróun.

Kjarnaþjónusta Kolibri eru þverfagleg teymi með hönnuðum, forriturum og teymisþjálfurum sem þróa vörur og hugbúnaðarlausnir en um tuttugu hugbúnaðarsérfræðingar og hönnuðir starfa hjá fyritækinu.

Á meðal dótturfélaga Kolibri eru Agile Ísland ehf. og Lean Ísland ehf. Heildarvelta fyrirtækjanna var 334 milljónir króna árið 2014. Viðskiptavinir Kolibri eru m.a. Íslandsbanki, Tryggingamiðstöðin og Landsnet.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK