WOW hefur flug til L.A. og San Fransisco

Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW.
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW.

WOW air mun hefja áætlunarflug til Los Angeles og San Fransisco næsta sumar og verða þetta fimmti og sjötti áfangastaður flugfélagsins í Norður-Ameríku. WOW air er fyrsta íslenska flugfélagið til að bjóða upp á beint flug til Los Angeles. Flogið verður fjórum sinnum í viku til Los Angeles og fimm sinnum í viku til San Francisco, allan ársins hring.

Sala á fargjöldum til Los Angeles og San Fransisco mun hefjast í byrjun næsta árs.

Þrjár nýjar Airbus A330-300 breiðþotur verða notaðar í flug WOW air til vesturstrandar Bandaríkjanna og verða þetta stærstu þotur sem flogið hefur verið í áætlunarflugi til og frá Íslandi.

Í tilkynningu frá WOW er bent á að Airbus A330-300 vélar séu sparneytnar, umhverfisvænar og langdrægar breiðþotur sem hafi drægni upp á 11.750 km. Vélarnar geta tekið að hámarki 440 farþega en vélar WOW air verða með 340 sætum til þess að hægt sé að bjóða upp á aukið sætabil og þægindi.

Lengd þeirra er 64 metrar og vænghafið er 60 metrar. Listaverð á nýrri Airbus A330-300 eru um 32 milljarðar íslenskra króna. 1200 slíkar vélar hafa verið framleiddar í heiminum og eru afar vinsælar vélar hjá helstu flugfélögum heims.

Mikil eftirspurn 

„Norður-Ameríku flug okkar sem og tengiflug okkar yfir Atlantshafið hefur gengið frábærlega og hefur sætanýting allt frá upphafi verið yfir 90%. Það liggur því beinast við að bæta við Los Angeles og San Fransisco sem eru stórkostlegar borgir í Kaliforníu og styrkja enn frekar leiðarkerfi okkar. Ljóst er að það er mikil þörf og eftirspurn eftir góðu lággjaldaflugfélagi sem flýgur yfir Atlantshafið,“ er haft eftir Skúla Mogensen forstjóra og stofnanda WOW air í tilkynningu.

„Við höfum nú þegar lækkað verð um tugi prósenta og munum að sjálfsögðu halda því áfram.  Við hlökkum til að bjóða upp á þessa tvo áfangastaði á vesturströnd Bandaríkjanna á frábærum verðum. Með þessari aukningu mun WOW air meira en tvöfalda sætaframboð sitt á næsta ári frá 900 þúsund sætum í ár í tæplega 2 milljónir sæta á næsta ári,“ segir Skúli.

Hollywood skiltið fræga í Los Angeles
Hollywood skiltið fræga í Los Angeles
Golden Gate brúin í San Fransisco
Golden Gate brúin í San Fransisco Mynd af Wikipedia
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK