CCP fær 4 milljarða fjárfestingu

Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP
Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP

Á hluthafafundi CCP í dag var tilkynnt um 30 milljóna dollara fjárfestingu, eða sem jafngildir tæpum fjórum milljörðum íslenskra króna, í fyrirtækinu sem er ætlað að efla starfsemi þess á sviði sýndarveruleika. Fjárfestingin er leidd af stærsta framtakssjóði heims; New Enterprise Associates (NEA), með þátttöku Novator Partners.

Helstu hluthafar fyrirtækisins í dag eru Novator, General Catalyst og NEA. 

Þessi nýja fjárfesting verður nýtt til að styrkja enn frekar stöðu CCP á sviði sýndarveruleika, nú þegar þessi nýja tækni er tekin að umbreyta afþreyingariðnaðinum, að því er segir í tilkynningu.

Harry Weller, einn af stjórnendum NEA, hefur tekið sæti í stjórn CCP auk þess sem annar fulltrúi NEA, Andrew Schoen, hefur tekið sæti varamanns í stjórn fyrirtækisins.

CCP hefur þegar tilkynnt um útgáfu á tveimur tölvuleikjum á sviði sýndarveruleika sem væntanlegir eru á næstu 8 mánuðum; EVE Valkyrie sem kemur út fyrir Oculus Rift á PC næsta vor og fyrir PlayStation VR á PlaySation 4 á fyrri helming næsta árs, og Gunjack sem koma mun út fyrir Gear VR búnað Samsung síðar í þessum mánuði.

Brautryðjendastarf

„Við höfum fylgst með starfsemi CCP um nokkurt skeið. Reynsla fyrirtækisins af útgáfu EVE Online og brautryðjendastarf þess á sviði sýndarveruleika hefur komið fyrirtækinu í fremstu röð á þessum vettvangi, og við viljum vera samstarfsaðilar þess í enn frekari landvinningum á þessu sviði,“ er haft eftir Harry Weller, einum af stjórnendum NEA, í tilkynningu.

„Það er okkar trú að sýndarveruleiki muni ekki aðeins umbylta tölvuleikjum og gerð þeirra, heldur tækniiðnaðinum í heild sinni. Við vorum með í þessari þróun frá byrjun, og þessi fjárfesting gerir okkur kleift að viðhalda forskoti CCP á þessu sviði,“ er haft eftir Hilmari Veigari Péturssyni, framkvæmdastjóra CCP.

Samningsdrög fyrir Vatnsmýrina kynnt

NEA hefur lengi verið í fararbroddi i i fjárfestingum á sviði hátækni og heilsugæslu. Innan tæknigeirans hefur sjóðurinn m.a. fjárfest í fyrirtækjum á sviði hugbúnaðargerðar, orkumála og neytendalausna á netinu. Sjóðurinn var stofnaður árið 1977 og hefur fjárfest í um 650 fyrirtækjum í sex heimsálfum. Eignir hans eru metnar á rúmar 17 milljarða Bandaríkjadala.

Á hluthafafundi CCP í dag voru jafnframt kynnt drög að samningi fyrirtækisins við Sturlugötu 6 ehf. um nýbyggingu í Vatnsmýri sem hýsa mun nýjar starfsstöðvar fyrirtækisins á Íslandi á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands. Húsið mun jafnframt hýsa fleiri fyrirtæki á sviði tækniþróunar og nýsköpunar.

CCP tilkynnti um flutning starfsemi sinnar á Íslandi yfir í Vatnsmýri fyrr á árinu, þar sem jafnframt voru kynnt áform fyrirtækisins um að styrkja og efla enn frekar samstarf þess við háskólasamfélagið og nýsköpunarfyrirtæki hérlendis.

Frétt mbl.is: CCP vill aukið hlutafé

Frétt mbl.is: Starfsemi CCP í Vatnsmýrina

Nýjar höfuðstöðvar CCP munu rísa þar sem bláleiti reiturinn er.
Nýjar höfuðstöðvar CCP munu rísa þar sem bláleiti reiturinn er.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK