Jóhannes mun áfrýja Stím-máli

Lárus Welding og Jóhannes Baldursson fyrir miðri mynd, en þeir …
Lárus Welding og Jóhannes Baldursson fyrir miðri mynd, en þeir voru báðir ákærðir í málinu. Reimar Pétursson, lögmaður Jóhannesar er til hægri. Eggert Jóhannesson

Jóhannes Baldursson, sem sakfelldur var í Stím-málinu svokallaða, mun áfrýja málinu til Hæstaréttar. Þetta staðfestir lögmaður hans, Reimar Pétursson, í samtali við mbl.is. Samkvæmt upplýsingum mbl.is er líklegt að svo verði einnig í tilvikum þeirra Lárusar Welding og Þorvalds Lúðvíks Sigurjónssonar, en þeir voru einnig sakfelldir í málinu. Lét Þorvaldur Lúðvík meðal annars vita af því á Facebook strax eftir dómsuppkvaðningu.

Í málinu var Lárus ákærður fyr­ir umboðssvik með því að hafa farið út fyr­ir heim­ild­ir sín­ar til lán­veit­inga hjá Glitni banka þegar hann beitti sér fyr­ir því að fé­lag­ið FS37, sem síðar varð Stim, fengi um 20 millj­arða króna lán frá bank­an­um með veði í öllu hluta­fé fé­lags­ins og bréf­um í FL Group sem láns­féð var notað til að kaupa. Láns­féð var einnig notað til að kaupa bréf í Glitni.

Jó­hann­es var ákærður fyr­ir umboðssvik fyr­ir að hafa beitt sér fyr­ir því að fjár­fest­inga­sjóður­inn GLB FX, í eigu Glitn­is banka, keypti fram­virkt skulda­bréf í Stím af Saga Capital. Þor­vald­ur var ákærður fyr­ir hlut­deild í umboðssvik­um með því að hafa hvatt til þeirra viðskipta og liðsinnt Jó­hann­esi í þeim. Mark­miðið með viðskipt­un­um hafi verið að tryggja að Saga Capital fengi kröfu sína að fullu bætta.

Lár­us var fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitn­is, en hann var í héraði dæmdur í fimm ára fangelsi vegna umboðssvika. Jóhannes var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta bankakns, en hann fékk tveggja ára fangelsisdóm fyrir umboðssvik. Þorvaldur Lúðvík var bankastjóri Saga Capital og fékk hann 18 mánaða dóm fyrir hlutdeild í umboðssvikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK