Handbært fé neikvætt vegna leiðréttingarinnar

Viðsnúningurinn milli ára skýrist að stórum hluta með því að …
Viðsnúningurinn milli ára skýrist að stórum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána kom til greiðslu í byrjun árs 2015. mbl.is/Kristinn

Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs fyrstu ellefu mánuði síðasta árs var neikvætt um 17,9 milljarða króna samanborið við jákvætt handbært fé upp á 38,6 milljarða 2014. Þessi viðsnúningur milli ára skýrist að stórum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var í lok ársins 2014 kom til greiðslu nú í byrjun árs 2015.

Þetta kemur fram í greiðsluuppgjöri ríkissjóðs fyrir janúar – nóvember 2015, sem liggur nú fyrir. En uppgjörið gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda.

Tekjujöfnuðurinn var lítillega neikvæður en staðan er betri en gert hafði verið ráð fyrir, að því er segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.

Innheimtar tekjur jukust um 9,4 milljarða milli ára en móti jukust greidd gjöld um 45,8 milljarða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK