Fundað um tölvupóst í Hádegismóum

Það var fjölmennt í Hádegismóum í morgun.
Það var fjölmennt í Hádegismóum í morgun. Morgunblaðið/Eggert

Yfir hundrað manns mættu á morgunverðafund hjá Kompaní, viðskiptaklúbbi Morgunblaðsins og mbl.is, sem haldinn var að Hádegismóum í morgun.

„Við vorum mjög ánægð með að sjá svona marga viðskiptavini á fundinum. Morgunverðafundirnir hjá Kompaní hafa alltaf verið mjög vel sóttir en nú komu fleiri en nokkru sinni fyrr,“ segir Magnús E. Kristjánsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Árvakurs.

Á fundinum í morgun var fjallað um tölvupóst sem markaðstæki. Leópold Sveinsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofunnar Argus, fræddi Kompaní-félaga um helstu kosti tölvupóstsins sem markaðstækis.

Kompaní er viðskiptaklúbbur Morgunblaðsins og stendur reglulega fyrir fræðslufundum og fyrirlestrum. 

Leópold Sveinsson er framkvæmdastjóri og eigandi markaðsstofunnar Argusar. Hann flutti …
Leópold Sveinsson er framkvæmdastjóri og eigandi markaðsstofunnar Argusar. Hann flutti erindi um helstu kosti tölvupósts sem markaðstækis. Morgunblaðið/Eggert
Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðisins, hlýddi á fyrirlestur Leópolds.
Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðisins, hlýddi á fyrirlestur Leópolds. Morgunblaðið/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK