Tvær nýjar konur í stjórn Sagafilm

Vala Halldórsdóttir
Vala Halldórsdóttir mbl.is/Ómar Óskarsson

Fjölgað hefur í stjórn Sagafilm, en tvær konur hafa tekið sæti í fimm manna stjórn félagsins, þær Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Vala Halldórsdóttir þróunarstjóri Plain Vanilla. 

Ragna hefur sinnt ýmsum störfum í atvinnulífinu sem og íslensku samfélagi frá því að hún gegndi störfum dómsmálaráðherra á árunum 2009-2010. Vala er með B.Sc. próf í verkfræði frá Háskóla Íslands og hefur fjölbreytta starfsreynslu. Hún leikstýrði meðal annars heimildamyndinni Startup kids og framleiddi spilið Heilaspuna. 

Aðrir stjórnarmenn eru Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri Sagafilm Nordic, Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri sjónvarps- og kvikmyndaframleiðslu Sagafilm og Ragnar Agnarsson, sem jafnframt er formaður stjórnar.

Breytingar á rekstri

Breytingar voru gerðar á rekstri Sagafilm í upphafi árs. Tækjaleigan Luxor og viðburðafyrirtækið Sagaevents sem áður voru deildir innan Sagafilm verða nú rekin sem sér einingar. 

Sagaevents sérhæfir sig í framleiðslu viðburða af öllum gerðum og stærðum fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini. Luxor þjónustar fyrirtæki í viðburða- og framleiðslubransanum og tók á árinu nýjan útsendingarbíl í notkun, setti upp skautasvell á Ingólfstorgi og sá um hönnun og uppsetningu sviðsmyndar í The Voice. 

Markmið breytinganna er að auka sérhæfni, skerpa á fókus og er stefnan sett ákveðið inn á sértæka markaði hvers fyrirtækis. Dagmar Haraldsdóttir stýrir Sagaevents og Bragi Reynisson heldur um taumana í Luxor.

Fjölbreytt verkefni framundan

Í tilkynningu segir að Sagafilm verði áfram skapandi framleiðslufyrirtæki í sjónvarps-, kvikmynda- og auglýsingagerð.

Haft er eftir Guðnýju Guðjónsdóttur, forstjóra, að verkefni ársins 2016 séu tilhlökkunarefni.

„Í undirbúningi er framleiðsla leikinnar sjónvarpsþáttaðrar í samstarfi við Skjáinn sem byggð er á bókunum um Stellu Blómkvist. Stella er frábært kvenhlutverk og við erum mjög spennt að takast á við hana. Óskar Þór Axelsson leikstýrir seríunni, en hann leikstýrði m.a. kvikmyndinni Svartur á leik og einum þætti Ófærðar.“

„Einnig er unnið að fjármögnun og þróun kvikmyndarinnar Vítis í Vestmannaeyjum, sem byggð er á bókum Gunnars Helgasonar. Baldvin Z, leikstjóri Vonarstrætis og spennuþáttaraðarinnar Réttar sem Sagafilm framleiddi fyrir Stöð 2, leikstýrir myndinni, en Jóhann Ævar Grímsson og Ottó G. Borg skrifa handrit í samstarfi við Gunnar Helgason.“

Ragna Árnadóttir
Ragna Árnadóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK