Skipuleggja Sementsreitinn

Þrívíddarteikning ASK í tilefni undirskriftarinnar.
Þrívíddarteikning ASK í tilefni undirskriftarinnar.

ASK arkitektum í Reykjavík hefur verið falið að deiliskipuleggja svonefndan Sementsreit á Akranesi samkvæmt samningi sem Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Páll Gunnlaugsson arkitekt undirrituðu þar í morgun. Stefnt er að því að ljúka öllu skipulagsferlinu fyrir lok árs 2016.

Skipulagið tekur aðallega til athafnasvæðis Sementsverksmiðjunnar. Akranes­kaupstaður tók við svæðinu í árslok 2013 og ætlar að nýta það fyrir íbúðabyggð og þjónustu auk  hafntengdrar starfsemi.

Í tilkynningu er haft eftir Regínu Ásvaldsdóttur að verkefnið sé mjög stórt, enda skipulagssvæðið alls um 75 þúsund fermetrar.

„Sementsreiturinn sjálfur er 55 þúsund fermetrar og svo nær skipulagið yfir Faxabrautina meðfram honum og einnig yfir hluta hafnarsvæðisins. Ásýnd strandlengjunnar á Akranesi mun taka miklum breytingum með uppbyggingunni þarna,“ er haft eftir Sigrúnu.

Þá er haft eftir Páli Gunnlaugssyni að verkefnið sé áhugavert og óvenjulegt í ýmsum skilningi. „Hönnunarreiturinn er á sögulegu svæði og þar er eitt helsta kennileiti Akraness. Það er tímanna tákn að leggja niður verksmiðju miðsvæðis í bæjarsamfélagi og skipuleggja landið til annarra nota. Akranes­kaupstaður sýnir hér mikinn metnað fyrir sína hönd og íbúanna og fyrir okkur hönnuðina er verkefnið bæði ögrandi og spennandi.“

Verkefnið verður unnið í nánu samráði við Faxaflóahafnir, enda er hluti skipulagssvæðisins í eigu þeirra.

Gert er ráð fyrir að verkefnið hefjist á skipulagslýsingu og svo taki hin eiginlega skipulagsvinna við í maímánuði og drög að skipulagi verði kynnt almenningi síðsumars.

Endanleg skipulagsgögn skulu liggja fyrir í september og þá verður skipulagið auglýst. Öllu ferlinu á að ljúka fyrir áramót.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Páll Gunnlaugsson arkitekt undirrituðu samninginn í …
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Páll Gunnlaugsson arkitekt undirrituðu samninginn í morgun.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK