VW-forstjóri grunaður um markaðsmisnotkun

Martin Winterkorn, fyrrverandi forstjóri VW.
Martin Winterkorn, fyrrverandi forstjóri VW. AFP

Saksóknari hefur staðfest að verið sé að rannsaka fyrrverandi forstjóra og stjórnarmann Volkswagen fyrir meinta markaðsmisnotkun í kjölfar útblástursmálsins.

Martin Winterkorn lét af störfum í september sl. eftir að upp komst að fyrirtækið hefur svindlað á útblástursprófunum árum saman. Á þeim tíma sagðist hann ekki vera meðvitaður um að hann hefði sjálfur gerst brotlegur í starfi með neinum hætti. Sagði hann ákvörðun um uppsögn tekna með hagsmuni fyrirtækisins að leiðarljósi.

Að sögn saksóknara í Braunschweig hefur embættið sannanir fyrir að Volkswagen hafi látið hjá líða að láta fjárfesta vita af mögulegu fjárhagslegu tjóni vegna málsins á tilsettum tíma.

Fyrirtækið sendi tilkynningu til fjárfesta 22. september sl.

Saksóknari hefur nefnt Winterkorn en stjórnarformaðurinn fyrrverandi sem einnig er til rannsóknar hefur ekki verið nefndur.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK