Vantar umhverfismat í Kerlingarfjöllum

Frá Kerlingarfjöllum.
Frá Kerlingarfjöllum. mbl.is/Árni Sæberg

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur tekið undir kröfu Landverndar í máli um nýja hótelbyggingu í Kerlingarfjöllum.

Í tilkynningu frá Landvernd segir að tveir úrskurðir nefndarinnar feli í sér skýr skilaboð til sveitarfélaga og Skipulagsstofnunar um vandaðri undirbúning ákvarðana sem hafa áhrif á náttúru og umhverfi.

Í ágúst 2015 kærði Landvernd þá ákvörðun Skipulagsstofnunar að Fannborg ehf. þyrfti ekki að umhverfismeta fyrsta áfanga af þremur í byggingu nýs hótels í Kerlingarfjöllum sem á að geta hýst 340 gesti.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála komst að þeirri niðurstöðu að umhverfismeta bæri alla áfangana enda samrýmdist annað ekki markmiðum umhverfismatslöggjafarinnar. Úrskurðarnefndin taldi, líkt og Landvernd byggði á, að framkvæmdir við fyrsta áfanga hótels breyttu umfangi og eðli mannvirkjagerðar og þjónustu frá því sem nú er, og hafnaði þannig skilningi Skipulagsstofnunar.

Framkvæmdaleyfi Hrunamannahrepps til efnistöku til hótelbyggingarinnar var einnig fellt úr gildi. 

„Gagnrýni sveitarstjórnar Hrunamannahrepps á Landvernd í fjölmiðlum í þá veru að samtökin hafi valdið tjóni með kærum sínum og fullyrðingar um að staðið hafi verið að öllum leyfisveitingum lögum samkvæmt falla því um sjálfar sig,“ segir í tilkynningu Landverndar.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar.

Felldu byggingarleyfi ekki úr gildi

Kröfu Landverndar um að byggingarleyfið sjálft yrði fellt úr gildi var hins vegar vísað frá úrskurðarnefndinni vegna þess að kærufrestur var liðinn.

Landvernd segir þó nokkuð ljóst að sveitarfélagið geti ekki látið byggingarleyfi fyrsta áfanga hótelsins standa, þar sem það byggi á forsendu sem nú sé brostin, þ.e. leyfisveitingin byggði á sínum tíma á því að ekki þyrfti umhverfismat fyrir fyrsta áfanga, en þeirri ákvörðun hefur nú verið hnekkt. „Samkvæmt því hlýtur sveitarstjórn að afturkalla byggingarleyfið,“ segir Landvernd.

Landvernd hefur lagt áherslu á að fyrirhuguð hótelbygging í Kerlingarfjöllum sé hin fyrsta sinnar gerðar á hálendinu, bæði að umfangi, útliti og eðli þjónustu. Hafi málið allt því mikið fordæmisgildi. 

Hér að neðan má finna ákvarðanir nefndarinnar:

Ákvörðun um byggingar- og framkvæmdaleyfi

Ákvörðun um matsskyldu

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK