Áhrif á almenning hverfandi

Segir í tilkynningu Hagstofunnar að leiðréttingin eigi rætur að rekja …
Segir í tilkynningu Hagstofunnar að leiðréttingin eigi rætur að rekja til mistaka sem urðu til þess að reiknuð leiga hliðraðist svo að áhrif verðbreytinga mældust með eins mánaðar tímatöf. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Án villu Hagstofunnar varðandi vísitölu neysluverðs sem varð til þess að reiknuð leiga var vanmetin hefði mánaðarbreyting vísitölunnar nú í september verið 0,21% í stað 0,48%. Mismunurinn er 0,27% prósentustig. „Áhrif á allan almenning eru hverfandi og verða fæstir lántakendur varir við breytinguna nema að litlu leyti,“ segir í tilkynningu frá Hagstofunni.

Þar segir að Hagstofan taki málið þó mjög alvarlega en frá og með mars 2016 og til og með september 2016 var reiknuð leiga vanmetin. Það hefur nú verið lagfært. Segir í tilkynningunni að leiðréttingin eigi rætur að rekja til mistaka sem urðu til þess að reiknuð leiga hliðraðist svo að áhrif verðbreytinga mældust með eins mánaðar tímatöf.

Ekki er um að ræða uppsöfnuð áhrif heldur hliðrun á breytingum um einn mánuð í senn.

„Hagstofa Íslands bregst við með því að leiðrétta liðinn og með því að upplýsa notendur eins fljótt og mögulegt er. Það var gert um leið og frétt um vísitölu neysluverðs í september var birt á vef Hagstofunnar. Niðurstöður útreiknings eru leiðréttar í einu mæligildi en eldri gildum verður ekki breytt. Því verður ekki séð að breytingar verði á skuldbindingum aftur í tímann,“ segir í tilkynningunni.

„Hagstofu Íslands þykir miður að mistök hafi orðið og reynir eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Hagstofan fer yfir verklýsingar er snúa að vísitölu neysluverðs og mun taka verklag til endurskoðunar í kjölfarið eins og þörf krefur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK