Gert er ráð fyrir 554 milljón króna afgangi af rekstri Hafnarfjarðarbæjar. Frumvarp að fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ári liggur nú fyrir og rekstur þess árs og fjárhagsáætlun næsta árs eru sögð sýna áherslur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á að auka þjónustu, draga úr álögum á íbúa, greiða niður skuldir og fjárfesta í auknum mæli fyrir eigið fé.
Þá gerir fjárhagsáætlunin ráð fyrir því að útsvar verði lækkað úr 14,53% sem er hámarksútvarpsprósenta í 14,48%. Er þetta í fyrsta skipti um árabil sem útsvarsprósentan er ekki í hámarki.
Áætlað veltufé frá rekstri A-hluta er um 2,4 milljarðar króna og samantekið fyrir A- og-B hluta 3,4 milljarðar króna, sem er um 14,3% af heildartekjum. Þá lækkar álagningarprósenta fasteignaskatts, holræsa- og vatnsgjalds milli ára á íbúðahúsnæði og leikskólagjöld haldast óbreytt fjórða árið í röð.
Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að hér sé um að ræða aðgerðir sem miða að því að draga úr álögum á íbúa þrátt fyrir almennar verðlagshækkanir. Þá er gert ráð fyrir auknum útgjöldum umfram almennar verðlagshækkanir í fjárhagsáætluninni samtals að fjárhæð um 390 milljónir króna. Um er að ræða m.a. aukin framlög til leik- og grunnskóla, fjölskylduþjónustu, menningarmála og umhverfisþjónustu.
„Í fyrsta skipti í a.m.k. 18 ár erum við ekki með útsvarið í hámarki. Við munum halda innviðafjárfestingum áfram á nýju ári. Þrjár nýjar félagslegar íbúðir eru nú í kaupferli og gert ráð fyrir 200 milljónum til viðbótar í félagslegar íbúðir á næsta ári. Aukin áhersla verður lögð á fagmenntun og nýsköpun í þjónustu bæjarins, fjölmenningu, bættan námsárangur og snemmtæka íhlutun svo fátt eitt sé nefnt. Viðhaldi hefur verið ábótavant hin síðustu ár og munum við í ár m.a. auka við viðhaldsfé til fasteigna, gatna og göngustíga bæjarins, efla snjómokstur og hálkuvarnir, að sópa, slátt og beðahreinsun“ er haft eftir Haraldi L. Haraldssyni, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, í tilkynningu.
Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með heildarútgjöld um 23,3 milljarða króna, áætlaðan launakostnað um 11,7 milljarða króna og áætlaðan fjármagnskostnað um 1,9 milljarð króna. Skuldahlutfall Hafnarfjarðarbæjar verður samkvæmt áætlun 170% í lok árs 2017 en var 194% í árslok 2015 og 202% í árslok 2014. Útkomuspá gerir ráð fyrir að skuldaviðmið verði í árslok 2016 150,9%. Samkvæmt fjárhagsáætlun 2017 verður skuldaviðmið 141,4% í lok þess árs. Gangi áætlun eftir er ljóst að skuldaviðmiðið mun fara niður fyrir 150% hlutfallið á árinu 2017.
Umtalsverður halli var á rekstri sveitarfélagsins árið 2015. Rekstrarniðurstaða fyrri hluta árs 2016 var jákvæð um 483 milljónir króna eða 349 milljónir króna umfram áætlun og samkvæmt útkomuspá er ekkert sem bendir til annars en að rekstrarniðurstaða í lok árs 2016 verði jákvæð og veruleg aukning í veltufé frá rekstri gangi eftir.
„Aðhald og hagræðing hefur skapað svigrúm hjá sveitarfélaginu til frekari framkvæmda á nýju ári. Hér spila tæplega 1.800 starfsmenn sveitarfélagsins í heild stórt hlutverk,“ segir í tilkynningu.