Í fjarhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2017 er gert ráð fyrir að rekstrarafgangur verði 131 milljón króna fyrir A og B hluta sveitarsjóðs. „Staða sveitarsjóðs hefur vænkast verulega á undanförnum árum og uppfyllir Borgarbyggð nú ríflega lágmarksviðmið eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga um skuldaviðmið og rekstrarjöfnuð,“ segir í fréttatilkynningu. Stefnt er að upptöku frístundakorts í sveitarfélaginu á næsta ári og lækkun fasteignagjalda.
Fjárhagsáætlun næsta árs ásamt þriggja ára áætlun 2018–2020 var tekin til fyrri umræðu í sveitarstjórn 10. nóvember. Ljúka ber síðari umræðu fyrir 15. desember en sveitarstjórn fundar næst 8. desember.
Í fréttatilkynningu frá Borgarbyggð segir um áhersluverkefni næsta árs að í fyrsta sinn verði tekið upp frístundakort í sveitarfélaginu. Framlag fyrir hvert barn á aldrinum 6-18 ára verður samtals 20.000 á ári.
Þá er stefnt að því að byrja að byggja við Grunnskólann í Borgarnesi næsta vor. Í viðbyggingunni verður m.a. fjölnota matsalur. Heildarkostnaður er áætlaður um 300 milljónir og kostnaður við viðhald á eldra skólahúsnæði er áætlaður um 200 milljónir.
Þá er flutningur leikskólans Hnoðrabóls í Reykholtsdal fyrirhugaður að Kleppjárnsreykjum á næsta ári. Til stendur að selja núverandi húsnæði leikskólans og parhús á Kleppjárnsreykjum til að mæta kostnaði sveitarfélagsins við flutninginn.
Borgarbyggð stefnir nú að því að verða heilsueflandi samfélag í samvinnu við Landlæknisembættið. „Áhersla verður lögð á að heilsa og líðan allra íbúa sé höfð í fyrirrúmi í allri stefnumótun og á öllum sviðum. Unnið verður að verkefninu á næstu árum í samvinnu við stýrihóp,“ segir í fréttatilkynningunni.
Samkvæmt fjárhagsáætlun næsta árs er gert ráð fyrir að fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði muni lækka frá fyrra ári því álagningarprósenta verður lækkuð úr 0,49 í 0,47. Á komandi ári er ráðgert að framkvæma fyrir 275 milljónir króna. Bætt rekstrarafkoma og eignasala gerir það að verkum að ekki verður þörf á lántöku.
Hér má nálgast fleiri lykilatriði fjárhagsáætlunar Borgarbyggðar fyrir árið 2017.