Hagar kaupa Lyfju á 6,7 milljarða

Smásölufyrirtækið Hagar hefur skrifað undir kaupsamning við Lindarhvoll ehf um kaup á Lyfju hf. Verðmiðinn er 6,7 milljarðar króna. Lyfja hf. samanstendur af móðurfélaginu Lyfju hf. ásamt dótturfélögunum Heilsu ehf. og Mengi ehf. Lyfja hf. rekur samtals 39 apótek, útibú og verslanir, auk lyfjaskömmtunar, um land allt undir merkjum Lyfju, Apóteksins og Heilsuhússins.

Frétt mbl.is: Hagar reyna að kaupa Lyfju

Lindarhvoll er félag í eigu ríkisins og hefur annast sölu á eignum sem ríkið vinnur að að selja. Í tilkynningu Haga til kauphallarinnar kemur fram að verðmat Haga byggi á ársreikningum félagsins undanfarin ár og rauntölum rekstrar fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2016.

Kaupsamningurinn er undirritaður með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Gangi þeir fyrirvarar eftir má gera ráð fyrir að gengið verði frá viðskiptunum fyrir 1. júlí 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK