„Þá varð mælirinn fullur“

„Við höfum reynt að ná samkomulagi við þá í gegnum …
„Við höfum reynt að ná samkomulagi við þá í gegnum árin með þeirri nálgun að þeir gætu notað þetta nafn og við myndum ekki fara inn á þeirra svið, þ.e. verslunarrekstur. En þeir hafa til dæmis mótmælt skráningu á íslenskum vörum í sjávarútvegi," segir Jón. mbl

Framkvæmdastjóri Íslandsstofu segir aðgerðir utanríkisráðuneytisins gagnvart bresku verslunarkeðjunni Iceland ekki snúast um það að meina henni að nota nafnið í sínu vörumerki heldur að þeir geti ekki meinað íslenskum aðilum að nota nafnið. Hann segir nafnið mjög mikilvægt fyrir íslenskan útflutning. „Það skiptir bara öllu máli að það sé ekki einhver þriðji aðili erlendis sem geti meinað íslenskum fyrirtækjum að kenna sín vörumerki við Ísland,“ segir Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, í samtali við mbl.is.

Fyrri frétt mbl.is: Ísland í mál við Iceland

Breska fyr­ir­tækið Iceland hef­ur einka­rétt á orðmerk­inu ICE­LAND í öll­um lönd­um Evr­ópu­sam­bands­ins, sam­kvæmt ákvörðun þeirr­ar stofn­un­ar inn­an ESB sem ann­ast vörumerkja­skrán­ing­ar (EUIPO). Samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins sem barst í gær hafa íslensk stjórn­völd krafist þess að einka­leyfið verði ógilt, enda sé það of víðtækt og komi í veg fyr­ir að ís­lensk­ir aðilar geti vísað til land­fræðilegs upp­runa síns. Versl­un­ar­keðjan hef­ur ít­rekað kvartað til evr­ópskra yf­ir­valda yfir ís­lensk­um aðilum sem nota orðið ICE­LAND sem hluta af vörumerki sínu.

Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Mótmæltu Inspired by Iceland

Jón segir langt síðan Íslendingar byrjuðu fyrst að mótmæla þessari skráningu Iceland en það hefur ekki enn borið árangur í Bretlandi. „Okkar andmæli hafa ekki fengið hljómgrunn. En það er fyrst núna frekar nýlega sem þeir hafa á óvæginn hátt farið að andmæla okkar skráningum, til að mynda Inspired by Iceland. Þá varð mælirinn fullur gagnvart okkur.“

Jón ítrekar að íslenskir aðilar hafi aldrei viljað meina Iceland að nota sitt nafn í skráningum. „Við höfum reynt að ná samkomulagi við þá í gegnum árin með þeirri nálgun að þeir gætu notað þetta nafn og við myndum ekki fara inn á þeirra svið, þ.e. verslunarrekstur. En þeir hafa til dæmis mótmælt skráningu á íslenskum vörum í sjávarútvegi. Eitt íslenskt fyrirtæki vildi skrá vörumerkið Iceland Gold sem Iceland andmælti.“

Hann segir að nú fari málið í gegnum evrópsku vörumerkjaskráninguna sem tekur sinn tíma. „Ég vona bara innilega að þetta falli með okkur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK