Upplýsingar eða lokun á Airbnb

Heitar umræður um Airbnb sköpuðust á Ferðaþjónustudeginum í dag.
Heitar umræður um Airbnb sköpuðust á Ferðaþjónustudeginum í dag. AFP

Ekki er boðlegt að erlent fyrirtæki á borð við Airbnb geti neitað stjórnvöldum um upplýsingar sem nauðsynlegar eru fyrir eftirlit með starfseminni. „Við eigum að standa í ístaðinu og fá þessar upplýsingar. Annars loka á þetta,“ sagði Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, í heitum pallborðsumræðum um Airbnb á Ferðaþjónustudeginum í dag.

Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra greip þá orðið og sagði ekki hægt að kenna fyrirtæki í útlöndum um lögbrot nokkurra einstaklinga. Grímur sagðist ósammála þessu og benti á að nauðsynlegar upplýsingar væru til hjá þessu fyrirtæki. Með þær að vopni væri hægt að ganga hús úr húsi og athuga skattskil manna.

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir offjárfestingu í hótelum einnig …
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir offjárfestingu í hótelum einnig vera ókost. mbl.is/Styrmir Kári

Offjárfesting í hótelum einnig ókostur

Björt benti á að offjárfesting í hótelum væri einnig ókostur og sagði útleigu íbúða góðan valkost. Nauðsynlegt sé hins vegar að færa starfsemina frekar upp á yfirborðið og gera greinarmun á útleigu heimilis til styttri tíma og heilsársútleigu. Sagði Björt að vinna stæði nú yfir við að gera hið fyrrnefnda aðeins skráningarskylt en ekki leyfisskylt.

Tók Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra undir muninn á þessu tvennu. Engin þolinmæði væri gagnvart þeim er væru að stunda svarta atvinnustarfsemi með heilsársútleigu en að dæmið horfði öðruvísi við þegar fólk væri að leigja út heimili sitt til skemmri tíma á meðan það færi sjálft til útlanda.

Sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að það hlyti að vera hægt að ráða við vandamálið þar sem allar upplýsingar væru aðgengilegar á heimasíðu Airbnb. Þar sé meðal annars hægt að nálgast mynd af eiganda og útleigutímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK