Kostar 77.560 að skrá heimagistingu

Aðeins hafa 161 sótt um leyfi hjá sýslumanni til að …
Aðeins hafa 161 sótt um leyfi hjá sýslumanni til að leigja út heimili sitt í skammtímaleigu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Það kostar alls 77.560 krónur að fá leyfi til að leigja út heimili sitt í Reykjavík á síðum á borð við Airbnb í skemmri tíma en níutíu daga á ári. Sá sem ætlar að leigja út heimili sitt á löglegan hátt á meðan hann er sjálfur erlendis þarf fyrst að greiða þetta gjald.

Um ára­mót­in tóku gildi ný lög um heimag­ist­ingu en til­gang­ur þeirra var að gera fólki mögu­legt að leigja út lög­heim­ili og frí­stunda­heim­ili sín með ein­föld­um hætti. Líkt og mbl greindi frá á dög­un­um hafa aðeins 161 sótt um og fengið slíkt leyfi. Í samtali við mbl í gær sagði Sölvi Melax, formaður Samtaka um skammtímaleigu á heimilum, að flækjustigið og kostnaðurinn við skráningu á eign í heimagistingu fæli marga frá því að gefa upp heimagistingu á löglegan hátt.

Upphaflega var talað um að kostnaðurinn við að skrá eign yrði í kringum 8.000 krónur en þar sem krafist er samþykkis Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hækkar verðið nokkuð.  

Er nauðsynlegt að greiða skráningargjald er hljóðar upp á 8.560, eftirlitsgjald fyrir skoðunina upp á 34.500 krónur auk starfsleyfisgjalds sem einnig hljóðar upp á 34.500. Nemur heildarkostnaðurinn þar með 77.560 krónum.

AFP

Engin einföldun

Heimagisting er hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur flokkuð sem áhættulítil starfsemi og er því ekki farið í eftirlitsferðir án þess að kvartanir berist. Ef réttmætur grundvöllur er talinn vera fyrir kvörtun þarf húseigandi að greiða 34.500 króna eftirlitsgjald en að öðru leyti er enginn viðbótarkostnaður. Starfsleyfið er gefið út til tólf ára.

Óskar Ísfeld Sigurðsson, deildarstjóri Matvælaeftirlits hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, segir að eftirlitið hafi á öllum stigum bent á að skráning íbúðar í heimagistingu samkvæmt nýju lögunum yrði ekkert einfaldari án þess að skilyrði um starfsleyfi Heilbrigðiseftirlitsins yrði fellt niður.

Staðsetning virkra gistirýma á Airbnb í Reykjavík.
Staðsetning virkra gistirýma á Airbnb í Reykjavík. Skjáskot/Skýrsla Íslandsbanka um ferðaþjónustu

Unnið að breytingum

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, sagði á Ferðamáladeginum í gær að endurskoðun á reglum um heimagistingu stæði yfir í hennar ráðuneyti. Sagði hún að unnið væri að því að gera skammtímaleigu aðeins skráningarskylda en ekki leyfisskylda.

Segist Óskar hafa heyrt af þessu en þó hafi hann ekki séð neinar tillögur.

Yrði áfram undir hefðbundnu eftirliti

Óskar bendir á að Heilbrigðiseftirlitið myndi áfram sinna eftirliti ef á þyrfti að halda þrátt fyrir að skráning hjá sýslumanni væri aðeins nauðynleg. „Heilbrigðiseftirlitið getur þannig blandað sér inn í málið komi upp einhver vandamál,“ segir hann. „Þannig hugsuðum við þetta á sínum tíma en því miður hlustuðu menn ekki á okkur. Mér finnst svolítið skrýtið að fólk sé að uppgötva það núna að breytingin hafi ekki orðið alveg eins og hún átti að vera,“ segir Óskar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK