Selur allar Fokker 50-vélar félagsins

Fokker 50 í flugtaki frá Reykjavíkurvelli.
Fokker 50 í flugtaki frá Reykjavíkurvelli. mbl.is/Árni Sæberg

Flugfélag Íslands hefur skrifað undir samninga við kanadíska fyrirtækið Avmax um sölu á fjórum Fokker 50-vélum félagsins, varahreyfli og varahlutum tengdum Fokker-vélunum. Með þessum samningum lýkur sögu Fokker 50-véla í eigu Flugfélags Íslands en þær hafa verið hjá félaginu frá 1992 og fyrirrennarar þeirra, Fokker 27, frá því árið 1965.  Í tengslum við þessa sölu kaupir Flugfélag Íslands eina Bombardier Q200 37 sæta vél af Avmax en fyrir er félagið með tvær slíkar vélar í rekstri. Gert er ráð fyrir að Q200-vélin komi í rekstur félagsins um næstu áramót en afhending Fokker 50-vélanna mun fara fram á næstu vikum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að í kjölfar breytinga á flugflota félagsins á síðasta ári þegar 3 Bombardier Q400  72-76 sæta vélar voru teknar í notkun urðu miklar breytingar á rekstri félagsins. Nýjum áfangastöðum hefur verið bætt við leiðarkerfi félagsins, flug til Aberdeen í Skotlandi frá Keflavík hófst í mars 2016, flug til Kangerlussuaq á Grænlandi hófst í júní síðastliðnum og í febrúar á þessu ári hófst heilsársflug milli Keflavíkur og Akureyrar. Í júní næstkomandi mun síðan hefjast flug frá Keflavík til Belfast á Norður-Írlandi.

„Með þessum samningum er lokið þeirri endurnýjun sem lagt var upp með í flugflota félagsins og er það mjög mikilvægur áfangi í því að efla félagið til frekari vaxtar. Með því að bæta einni Bombardier Q200-vél í rekstur félagsins mun sveigjanleiki félagsins aukast og ný tækifæri skapast til að efla leiðarkerfið enn frekar,“ er haft eftir Árna Gunnarssyni, framkvæmdastjóra félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK