Vill sjá gistináttaskattinn felldan niður

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála. mbl.is/Eggert

Ráðherra ferðamála vill sjá gistináttaskattinn felldan niður eða fluttan til sveitarfélaga samfara breytingum á virðisaukaskattskerfinu. Þetta kemur fram í frétt Túrista.

Vitnað er í skriflegt svar Ólafs Teits Guðnasonar, aðstoðarmanns Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ráðherra ferðamála, um að hún hafi rætt afnám skattsins, og þann möguleika að sveitarfélögin fengju heimild til að leggja hann á, við fjármálaráðherra og fengið jákvæð viðbrögð. Formleg vinna við útfærslu á tillögunni er þó ekki hafin en það verði væntanlega skoðað á næstunni segir í svari Ólafs Teits.

Hundrað króna gistináttaskattur hefur verið innheimtur á íslenskum gististöðum síðustu fimm ár en upphæð gjaldsins fer upp í 300 krónur 1. september næstkomandi. Bent er á í frétt Túrista að níu mánuðum síðar muni virðisaukaskattur á ferðaþjónustu svo ríflega tvöfaldast samkvæmt fjármálaáætlun Benedikts Jóhannssonar fjármálaráðherra. Þar með hækkar virðisaukaskattur á gistingu úr 11% í 24% en lækkar svo niður í 22,5% í ársbyrjun 2019. 

Í frétt Túrista segir að gistináttaskattar séu ekki almennir í þeim löndum þar sem virðisaukaskattur á ferðaþjónustu er í efsta þrepi. Í Danmörku þar sem virðisaukinn er 25%, sá hæsti í Evrópu, mun sérstakt gistináttagjald ekki hafa verið til umræðu samkvæmt svari frá Horesta, samtökum hótel- og veitingageirans í Danmörku, við fyrirspurn Túrista.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK