Grunur Vilhjálms er alltaf sá sami

Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálstæðisflokksins.
Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálstæðisflokksins. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að sig hafi grunað lengi að fé­lagið Dek­hill Advisors, sem fékk hluta hagnaðar­ins af Hauck & Auf­häuser-flétt­unni á móti Ólafi Ólafs­syni, væri ennþá til.

„Mig er búið að gruna þetta nokkuð lengi,“ segir Vilhjálmur í samtali við blaðamann sem truflaði Vilhjálm þar sem hann var að spila brids. „Grunur minn er alltaf sá sami; að maður sem á fæðingardag 8.8. '54 eigi reikning númer 668854. Það hefur ekkert breyst.

Hvaða kynþokkafulli maður á afmæli 8. ágúst og er fæddur 1954?“ spurði Vilhjálmur á Facebook-síðu sinni 31. mars skömmu eftir skýrslu rannsóknarnefndar um sölu Búnaðarbankans.

Dek­hill Advisors fékk hluta hagnaðar­ins af Hauck & Auf­häuser-flétt­unni á móti Ólafi Ólafs­syni. Árið 2006 voru 46,5 millj­ón­ir Banda­ríkja­dala greidd­ar af banka­reikn­ingi Well­ing & Partners til af­l­ands­fé­lags­ins Dek­hill Advisors Lim­ited sem var skráð á Tor­tóla.

Vilhjálmur hefur enga trú á því að Ólafur Ólafsson komi fram með eitthvað nýtt þegar hann kemur á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á morgun. „Það getur ekki verið. Fyrsta skjalið sem ég opnaði var frá Steingrími Ara Arasyni til Davíðs Oddssonar og það hefur löngum legið fyrir. Eftir að ég sá að það var allt og sumt þá datt mér ekki í hug að hitt væri merkilegra og hélt áfram að spila.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK