Krónan og 17 sortir notuðu duldar auglýsingar á Instagram

Instagram notendur voru duglegir að birta myndir af kökudeigi 17 …
Instagram notendur voru duglegir að birta myndir af kökudeigi 17 sorta fyrir jólin sem var aðeins fáanlegt í Krónunni. Skjáskot af Instagram

Neytendastofa hefur bannað fyrirtækjunum Krónunni og 17 sortum að nota duldar auglýsingar í markaðssetningu en stofnuninni barst fjöldi ábendinga vegna stöðufærslna einstaklinga á Instagram þar sem fjallað var um ágæti vara og vörumerkja fyrirtækjanna. Fór Neytendastofa því fram á upplýsingar um það hvort einstaklingarnir hafi fengið greitt fyrir umfjallanirnar og hvernig staðið hafi verið að markaðssetningunni. 

Greint er frá þessu á vef Neytendastofu. 

Að sögn Krónunnar og 17 sorta annaðist þriðja fyrirtækið milligöngu við einstaklingana við skipulagningu markaðssetningarinnar. Við meðferð málsins kom fram að einstaklingarnir höfðu þegið greiðslur fyrir umfjöllunina og því væri um auglýsingar að ræða. Færslurnar voru merktar með myllumerkjum með heitum fyrirtækjanna en Neytendastofa taldi merkingarnar ekki nægilegar til þess að neytendur gætu með góðu móti áttað sig á því að um auglýsingar væri að ræða. 

Taldi Neytendastofa því að Krónan og 17 sortir hefðu brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK