43% Íslendinga hafa farið í Costco

Röð fyrir utan Costco.
Röð fyrir utan Costco. mbl.is/Kristinn Magnússon

43% Íslendinga 18 ára og eldri hafa farið í Costco og önnur 49% hafa ekki farið en ætla að heimsækja verslunina við tækifæri samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar MMR. Tæp 8% svarenda sögðust ekki ætla fara í verslunina. Í könnuninni kom í ljós að yngri svarendur og þeir sem bjuggu á tekjuhærri heimilum voru töluvert líklegri en aðrir til að hafa heimsótt Costco en aðrir.

Könnunin var gerð dagana 6. – 14. júní og var svarfjöldi 974 einstaklingar. Verslunin var opnuð 23. maí.

Fleiri konur en karlar höfðu farið í Costco einu sinni eða oftar eða 47% miðað við 40% karla. Þar af höfðu 10% karla og 11% kvenna farið þrisvar sinnum eða oftar.

Þá kvaðst 51% svarenda undir 29 ára sem hafa heimsótt Costco en 26% þeirra sem voru 68 ára og eldri. Nærri helmingur, eða 49%, þeirra sem bjuggu á heimilum með heimilistekjur yfir milljón krónur á mánuði, hafði heimsótt verslunina en 34% þeirra sem bjuggu á heimilum með undir 400 þúsund krónur í tekjur.

Af þeim sem búsettir voru úti á landi sögðust 60% svarenda ekki hafa farið í Costco en myndu gera það við tækifæri en 43% þeirra sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu sögðu slíkt hið sama. Að sama skapi höfðu 50% höfuðborgarbúa heimsótt verslunina en 29% íbúa landsbyggðarinnar.

Ef horft er til stjórnmálaskoðana má sjá að stuðningsfólk Vinstri grænna hafði síst heimsótt Costco eða 29% en stuðningsfólk Samfylkingarinnar var aftur á móti líklegast til að ætla ekki að fara í Costco eða 13%. Sjáflstæðismenn virðast hins vegar llíklegastir til að kjósa Costco, en 95% þeirra hafa annað hvort komið í verslunina eða ætla að fara þangað við tækifæri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK