Frávísunarkröfu Borgunar hafnað

Í desember greindi Landsbankinn frá því að hann hefði stefnt …
Í desember greindi Landsbankinn frá því að hann hefði stefnt Borg­un hf., for­stjóra Borg­un­ar hf., BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borg­un slf., en málið er höfðað til viður­kenn­ing­ar á skaðabóta­skyldu stefndu. mbl.is/Júlíus

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag frávísunarkröfu Borgunar vegna málsóknar Landsbankans gegn fyrirtækinu. 

Í desember greindi Landsbankinn frá því að hann hefði stefnt Borg­un hf., for­stjóra Borg­un­ar hf., BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borg­un slf., en málið er höfðað til viður­kenn­ing­ar á skaðabóta­skyldu stefndu.

Hinir stefndu kröfðust þess að málinu yrði vísað frá en hérðasdómur taldi rétt að málið hlyti efnislega meðferð.

Í tilkynningu bankans frá því í desember kemur fram að það sé mat Landsbankans að hann  hafi orðið af sölu­hagnaði við sölu á 31,2% hlut sín­um í Borg­un hf. árið 2014.

„Bank­inn fékk ekki upp­lýs­ing­ar sem stefndu bjuggu yfir um að Borg­un hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og rétt­indi sem fylgdu hlutn­um, þ. á m. mögu­lega hlut­deild í sölu­hagnaði Visa Europe Ltd. við nýt­ingu sölu­rétt­ar í val­rétt­ar­samn­ingi Visa Inc. og Visa Europe Ltd,“ sagði í tilkynningu Landsbankans í desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK