Halli á vöruviðskiptum við útlönd

Iðnaðarvörur voru 55,2% alls útflutnings á fyrri helmingi ársins 2017.
Iðnaðarvörur voru 55,2% alls útflutnings á fyrri helmingi ársins 2017. mbl.is/Sigurður Bogi

Á fyrri helmingi ársins 2017 voru fluttar út vörur fyrir 244,4 milljarða króna en inn fyrir 325,5 milljarða króna. Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 81,1 milljarði króna, að fram kemur í nýjum tölum Hagstofunnar.

Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 64,2 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 16,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Á fyrri helmingi ársins 2017 var verðmæti vöruútflutnings 30,5 milljörðum króna lægra, eða 11,1%, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,1% lægra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 38,0% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 21,9% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum.

Á fyrri helmingi ársins 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 13,6 milljörðum króna lægra, eða 4,0%, á gengi hvors árs, en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á flugvélum og neysluvörum saman en á móti jókst innflutningur á skipum, eldsneyti, fólksbílum og hrá- og rekstrarvörum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK