Endurskoða starfsemi Kadeco

Kjartan Þór Eiríksson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Kadeco, Þróunarfélags …
Kjartan Þór Eiríksson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. mbl.is/Helgi Bjarnason

Framundan er endurskoðun á starfsemi Kadeco, Þróunarfélagsin Keflavíkurflugvallar ehf. og hefur Kjartan Þór Eiríksson, sem verið hefur framkvæmdastjóri frá stofnun þess árið 2006, ákveðið að segja starfi sínu lausu. Samkomulag hefur orðið um að hann láti af störfum strax en við hlutverki hans tekur Marta Jónsdóttir sem til þessa hefur starfað sem lögfræðingur félagsins.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kadeco.

Upphaflegum verkefnum félarsins er að stórum hluta lokið en Kadeco var stofnað af stjórnvöldum í þeim tilgangi að koma eignum, sem ríkið tók yfir á varnarsvæðinu á Miðnesheiði, í hagfellda notkun þar sem áhersla skyldi lögð á hagsmuni nærsamfélagsins að því er segir í tilkynningunni.

Á Ásbrú búa nú um 2.500 manns auk þess sem þar starfa á annað hundrað fyrirtæki og stofnanir með yfir 800 starfsmenn. Að því er fram kemur í tilkynningunni er fjárfesting á svæðinu frá árinu 2006 metin á yfir eitt hundrað milljarða króna og þá hefur sala eigna skilað ríkissjóði um tíu milljörðum króna.

Hafa selt allar eignir

„Ég er þakklátur fyrir þau tíu ár sem ég hef farið fyrir Kadeco og ánægður með þann árangur sem við höfum náð. Við höfum nú selt nær allar þær eignir sem félagið fékk til umsýslu með góðum hagnaði fyrir ríkið. Á sama tíma hefur byggst upp lífleg íbúabyggð og fjölbreytt atvinnustarfsemi á Ásbrú sem hefur styrkt samfélagið hér á Suðurnesjum mikið. Það liggur því fyrir að félagið stendur nú á tímamótum og fyrirsjáanlegt er að breytingar muni verða á hlutverki þess og starfsemi. Því tel ég að núna sé rétti tíminn fyrir mig til að láta af störfum hjá félaginu,“ er haft eftir Kjartani Þór í tilkynningunni.

Georg Brynjarsson, stjórnarformaður Kadeco, þakkar Kjartani fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar.

„Stjórn félagsins mun á næstu vikum endurskoða starfsemi og stefnu félagsins í samstarfi við hlutaðeigandi aðila á svæðinu. Þrátt fyrir minnkandi fasteignaumsvif er mikill fjöldi verkefna í gangi hjá félaginu og markmið endurskipulagningarinnar er að varðveita uppsafnaða þekkingu innan Kadeco og tryggja viðfangsefnum félagsins varanlegan farveg,“ segir Georg.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK