Fjármálastjórinn bætir við hlut sinn

Hlutabréf Icelandair Group hafa lækkað töluvert á árinu. Við áramót …
Hlutabréf Icelandair Group hafa lækkað töluvert á árinu. Við áramót stóð gengið í 23,5 krónum en í 14,1 krónum í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri Icelandair Group hefur í dag keypt bréf í félaginu fyrir um 10,6 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair Group til Kauphallarinnar. Þar kemur fram að Bogi hafi keypt 750.000 hluti í í félaginu á genginu 14,1.

Eftir viðskiptin á Bogi 1.750.000 hluti í félaginu.  

Hlutabréf Icelandair Group hafa lækkað töluvert á árinu. Við áramót stóð gengið í 23,5 krónum en í 14,1 krónum í dag. Það sem af er degi hafa bréfin lækkað um 0,7% í Kauphöllinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK