Ragnhildur ráðin aðstoðarforstjóri WOW air

Ragnhildur hefur víðtæka reynslu úr íslensku viðskiptalífi en síðustu fimm …
Ragnhildur hefur víðtæka reynslu úr íslensku viðskiptalífi en síðustu fimm ár hefur hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra Rekstrar og upplýsingatækni hjá Landsbankanum hf. Þar áður var hún forstjóri Promens hf. auk þess sem hún var framkvæmdastjóri Rekstrarstýringar og forstjóri Flugleiða hf./FL Group hf.

Ragnhildur Geirsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarforstjóri WOW air. Sem aðstoðarforstjóri mun meginverkefni hennar felast í að hafa umsjón með daglegum rekstri félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá WOW air.

Með tilkomu Ragnhildar mun Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri félagsins einbeita sér meir að langtíma stefnumótun og uppbyggingu WOW air erlendis sem og innleiðingu á tækninýjungum sem hafa ekki áður þekkst í flugheiminum.

Ragnhildur hefur víðtæka reynslu úr íslensku viðskiptalífi en síðustu fimm ár hefur hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra Rekstrar og upplýsingatækni hjá Landsbankanum hf. Þar áður var hún forstjóri Promens hf. auk þess sem hún var framkvæmdastjóri Rekstrarstýringar og forstjóri Flugleiða hf./FL Group hf. Ragnhildur hefur einnig setið í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja á Íslandi og erlendis.

Ragnhildur er verkfræðingur og viðskiptafræðingur að mennt. Hún lauk CS-prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 1995, MS-prófi í iðnaðarverkfræði frá Háskólann í Wisconsin árið 1996 og MS-prófi í viðskiptafræði frá sama skóla 1998.

Með tilkomu Ragnhildar mun Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri félagsins …
Með tilkomu Ragnhildar mun Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri félagsins einbeita sér meir að langtíma stefnumótun og uppbyggingu WOW air erlendis sem og innleiðingu á tækninýjungum sem hafa ekki áður þekkst í flugheiminum. mbl.is/RAX
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK