Skuldir vaxið hraðar en 2008

Fasteignaverð hefur hækkað 22 sinnum hraðar en byggingarkostnaður síðastliðna 12 …
Fasteignaverð hefur hækkað 22 sinnum hraðar en byggingarkostnaður síðastliðna 12 mánuði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fasteignaverð hefur hækkað 22 sinnum hraðar en byggingarkostnaður síðastliðna 12 mánuði. Framboð íbúðarhúsnæðis á söluskrá hefur farið ögn vaxandi á undanförnu eftir að hafa náð sögulegu lágmarki í byrjun ársins. Þá hefur hækkun leiguverðs tekið framúr launaþróun. Skuldir heimilanna vaxa hraðar en þær hafa gert frá 2008 hins vegar hafa vanskil farið áfram lækkandi í útlánasafni Íbúðalánasjóðs. Þetta kemur fram í mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs.

Frá júlí 2016 til júlí 2017 hefur leiguverð hækkað um 12% á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma hækkaði kaupverð á fjölbýli um 19% og laun um 7%.  

Heildarskuldir heimilanna  voru í lok júlí 10,7% hærri en raunvirði en á sama tíma 2016. Skuldastaða heimilanna hefur ekki mælst hærri en nú er frá því í lok sumars 2008.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK