100 milljónir í endurnýjun þyrluflota

Landhelgisgæslan fær 100 milljón króna framlag til undirbúnings á endurnýjun …
Landhelgisgæslan fær 100 milljón króna framlag til undirbúnings á endurnýjun þyrluflota. mbl.is/Árni Sæberg

Heildarfjárheimild til Landhelgisgæslu Íslands fyrir næsta ár er áætluð 4.271 milljónir króna og hækkar um 326.9 milljónir frá gildandi fjárlögum, þar af er áætlað að 19 milljónir renni til almennra launa- og verðlagsbreytinga.

Undir málaflokkinn landhelgi í frumvarpi til fjárlaga fellur ein stofnun, Landhelgisgæsla Íslands, sem sér um öll verkefni málaflokksins, en einnig Landhelgissjóður sem fjármagnar kaup eða leigu á skipum, loftförum eða öðrum tækjum til að sinna verkefnum Landhelgisgæslunnar.  Markmið í málaflokkum eru að tryggja almannaöryggi, löggæslu og eftirlit í auðlindalögsögu Íslands í samræmi við öryggis- og þjónustustig og að viðbúnaður í leit og björgun verði í samræmi við öryggis og þjónustustig, að því er fram kemur í fjárlagafrumvarpinu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins má rekja til 100 milljón króna framlags til undirbúnings á endurnýjun þyrluflota Landhelgisgæslunnar en þrjár þyrlur eru í rekstri í dag. Þar af er ein í eigu stofnunarinnar og tvær leigðar. Þá er lagt til að tímabundið 100 milljón fróna framlag til gæslunnar sem veitt var af alþingi við afgreiðslu fjárlaga yfirstandandi árs verði gert varanlegt. 

Fjárheimild Landhelgisgæslunnar er hækkað um 243,3 milljónir króna vegna aukins rekstrarumfangs sem fjármagnað er með sértekjum en framlag Landhelgisgæslunnar er lækkað um 35,4 milljónir til að uppfylla aðhaldskröfur gildandi fjármálaáætlunar eftir að hluta útgjaldasvigrúms málefnasviðsins til nýrra verkefna hefur verið nýtt til að mæta hluta aðhaldskröfunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK