WOW air hefur flug til Ísrael

WOW air mun fljúga fjórum sinnum í viku til Ísraels.
WOW air mun fljúga fjórum sinnum í viku til Ísraels. Ljósmynd/Wow air

WOW air hefur áætlanaflug til til Tel Aviv í Ísrael í kvöld. Flogið verður fjórum sinnum í viku með nýrri Airbus A321neo vél. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingum býðst beint áætlunarflug til Ísrael.

„Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á ferðum til og frá Ísrael enda land sem býr yfir ríkri menningu. Með því að tengja Tel Aviv við leiðarkerfi WOW air til Norður Ameríku þá mun staða Íslands sem tengistöð styrkjast enn frekar,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og eigandi WOW air.

Tel Aviv er næst stærsta borg Ísrael á eftir Jerúsalem. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK