Léttvínskassinn hækkar um 500 krónur

Félag atvinnurekenda skora á stjórnvöld að endurskoða skattahækkunaráform
Félag atvinnurekenda skora á stjórnvöld að endurskoða skattahækkunaráform mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Félag Atvinnurekenda hefur reiknað út hvað nokkrar algengar léttvínstegundir muni hækka í verði við þá skatthækkun sem lögð er til í fjárlagafrumvarpinu. Samkvæmt útreikningum FA mun þriggja lítra kassi af rauðvíni með 13,5% áfengisinnihaldi sem kostar í dag 5.699 krónu hækka í 6.276 krónur eða um 10,1%. Þannig muni flaska af rauðvíni sem nú kostar 1.365 krónur kosta 1.516 krónur eða um 11,5%. 

Frétt mbl.is Áfeng­is­gjald á létt­víni hækk­ar

Skattur á léttvín sá hæsti í Evrópu

Samkvæmt greiningu FA er skatturinn á léttvín sá langhæsi í Evrópu en FA styðjast við tölur frá Spirits Europe sem eru hagsmunasamtök evrópskra áfengisframleiðenda. Mörg Evrópuríki leggja raunar ekkert áfengisgjald á léttvín að því er fram kemur í tilkynningunni, heldur aðeins virðisaukaskatt. Þrátt fyrir að virðisaukaskattur á áfengis sé lægri hér á landi en í flestum Evrópuríkjum er samanlögð skattlagning á áfengi mest hér á landi. Eina undantekningin er að í Noregi er samanlagt áfengisgjald og virðisaukaskattur á bjór lítið eitt lægra en hér á landi samkvæmt útreikningum FA. 

Frétt mbl.is Stjórn FA seg­ir jöfn­un gjalda yf­ir­varp fyr­ir skatta­hækk­un

Ódýrt vín hækka mest

Ólafur Stephensen
Ólafur Stephensen mbl.is/GudmundurKR

Hlutfallslega hækka ódýrari vín mest en í útreikningum FA er reiknað út hvað nokkrar algengar léttvínstegundir muni hækka í verði við skatthækkunina sem er lögð til í fjárlagafrumvarpinu. Haft er eftir Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra FA, að skattlagning á áfengi sé orðin svo gjörsamlega fráleit að öll rök standi til þess að lækka frekar skattinn á bjór en að hækka skattinn á léttvín til að jafna gjöld. „Við bendum jafnframt á að vegna þess að áfengisgjaldið er föst krónutala sem leggst á magn hreins vínanda, verður hlutfallsleg hækkun á ódýrari vínum mun meiri en á þeim dýrari. Enn og aftur eru það því þeir sem minnst hafa á milli handa sem verða harðast fyrir barðinu á þessari takmarkalaus skattgleði stjórnvalda.“

Í tilkynningunni vísar Ólafur jafnframt til ályktunar stjórnar FA þar sem skorað var á Alþingi að endurskoða skatthækkunaráformin í fjárlagafrumvarpinu. „Það er kominn tími til að einhver af hinum meintu frjálslyndu þingmönnum í stjórnarliðinu segi einfaldlega hingað og ekki lengra, það er ekki endalaust hægt að hækka skatta á einni neysluvöru,“ segir Ólafur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK