Tæp helmingsfjölgun farþega í september

Ljósmynd/WOW air

WOW air flutti 285 þúsund farþega til og frá landinu í september eða um 47% fleiri farþega en í september árið 2016.

Þá var sætanýting WOW air 85% í september í ár þrátt fyrir 54% aukningu á framboðnum sætum miðað við sama tímabil í fyrra. Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt yfir 2.2 milljón farþega.

WOW air flýgur nú til 38 áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku og hefur yfir að ráða einn yngsta flugflotann í Evrópu. Nýlega bættust fimm nýir áfangastaðir við leiðarkerfi WOW air í Bandaríkjunum; Dallas, Cleveland, Cincinnati, St. Louis og Detroit og hefst flug þangað næsta vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK