Sjö milljónasti farþeginn á Keflavíkurflugvelli

Chris og Joanne Bradley hlökkuðu til dvalarinnar á Íslandi.
Chris og Joanne Bradley hlökkuðu til dvalarinnar á Íslandi. Ljósmynd/Isavia

Starfsfólk Isavia fagnaði á dögunum sjö milljónasta farþeganum sem fór um Keflavíkurflugvöll í ár er hann kom til landsins frá Belfast með Easy Jet.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. Þau heppnu voru Chris og Joanne Bradley og voru þau leyst út með gjöfum af verslunarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli, með vörum frá Bláa Lóninu og Fríhöfninni, íslensku ullarteppi frá Rammagerðinni og bók frá Pennanum Eymundsson. 

Hjónin sögðust ánægð með móttökurnar og hlökkuðu til að upplifa öðruvísi frí en að liggja á sólbekk við sundlaug en þau voru á leið í fjögurra daga frí á Íslandi.

Talning farþega um Keflavikurflugvöll skiptist í komufarþega, brottfararfarþega og skiptifarþega og skiptist fjöldinn um það bil jafnt í þrennt. Þegar sjömilljónasti farþeginn fór um völlinn skiptist farþegafjöldinn svona: 2.253.992 brottfararfarþegar, 2.319.489 komufarþegar og 2.426.519 skiptifarþegar.

Á síðasta ári náði farþegafjöldinn 6,8 milljónum en í ár er búist við að fjöldinn verði um 8,7 milljónir og því verður bæði fagnað núna þegar sjö milljóna múrnum er náð og einnig þegar fjöldinn fer yfir átta milljónir í desember næstkomandi.

Fjölgun farþega hefur verið mjög hröð um Keflavíkurflugvöll síðastliðin ár og samkvæmt farþegaspá Isavia verður fjöldinn í ár 28% meiri en árið 2016. Þá munu ríflega fjórfalt fleiri ferðast um flugvöllinn í ár en árið 2010.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK