United Silicon fær gálgafrest

Héraðsdóm­ur Reykja­ness samþykkti í dag beiðni kröfuhafa United Silicon um að heimild til greiðslustöðvunar yrði framlengd til 22. janúar. 

United Silicon fékk í lok ágúst heimild til greiðslustöðvunar til 4. desember svo að unnt væri að rétta reksturinn af. Enn er unnið að til­lög­um um end­ur­bæt­ur á kís­il­veri United Silicon í Helgu­vík til að draga úr meng­un sem stafar af framleiðslunni. Niðurstaða tæknilegra úttekta felur í sér umtalsverða fjárfestingaþörf í starfsemi verksmiðjunnar.

Yfir greiðslustöðvunartímann hefur kostnaður Arion banka, stærsta hluthafa United Silicon, numið meira en 600 milljónum króna samkvæmt heimildum mbl.is. Greint var frá því síðla nóvember að alþjóðleg­ir aðilar í kís­iliðnaði hefðu sett sig í sam­band við Ari­on banka vegna United Silicon og lýst yfir áhuga á að skoða aðkomu að starf­semi verk­smiðjunn­ar.

Kröfu­haf­ar skoða einnig aðkomu að mál­um verksmiðjunnar en meðal þeirra eru Íslensk­ir aðal­verk­tak­ar, Lands­virkj­un, Reykja­nes­bær og ít­alska fyr­ir­tækið Tenova sem seldi United Silicon ljós­boga­ofn­inn.

Þá hefur verið haft eftir banka­stjóra Ari­on banka að ekki sé úti­lok­að að United Silicon verði sett í þrot og bank­inn gangi þá að sín­um kröf­um.

Um sextíu manns eru að störfum hjá verksmiðjunni en frá því framleiðsla var stöðvuð í byrjun september hefur starfsfólkið meðal annars sinnt viðhaldi og tíminn verið nýttur í að styrkja það í störfum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK