Hægir verulega á vexti ferðaþjónustu

Útflutningur ferðaþjónustu á þriðja ársfjórðungi jókst um 3,2% milli ára og þarf að leita aftur til fjórða ársfjórðungs ársins 2010 til að finna minni vöxt.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. Þar segir að frá þeim tíma hafi vöxtur útflutningstekna numið að meðaltali 18,6% milli ára. Vöxturinn á þriðja ársfjórðungi skeri sig því verulega frá meðalvexti síðustu ára.

Aukning útflutnings ferðaþjónustu á föstu gengi nam 12% á þriðja fjórðungi borið saman við sama tímabil í fyrra. Leita þarf aftur til fjórða ársfjórðungs 2014 til að finna minni aukningu milli ára, en þá nam hún 9%.

„Það að aukningin á föstu gengi sé meiri en á verðlagi hvers tíma skýrist af styrkingu krónunnar milli tímabilanna en gengisvísitalan var að meðaltali 163,1 stig á þriðja ársfjórðungi 2017 en 176,9 stig á sama tímabili í fyrra (7,8% lægra).“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK