„Íslenskir aðilar, þar með taldir lífeyrissjóðir, hafa fjárfest erlendis fyrir upp undir hundrað milljarða króna frá júní til október. Það er að einhverju leyti skýringin á því að krónan veiktist í sumar samhliða ferðamannastraumnum,“ segir Konráð S. Guðjónsson, sérfræðingur í greiningardeild Arion banka í samtali við Morgunblaðið.
„Innlendir fjárfestar virðast því hafa tekið losun fjármagnshafta fyrr á árinu fegins hendi.“
Fram kemur í Markaðspunktum Arion banka að í nýbirtum tölum um þriðja ársfjórðung, þ.e. júní til ágúst, hafi íslenskir aðilar fjárfest fyrir 43 milljarða í erlendum verðbréfum og afleiðustaða gagnvart útlöndum jókst um nærri 11 milljarða króna. Innlendir aðilar greiddu sömuleiðis niður skuldir gagnvart útlöndum um 44 milljarða króna.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag.