Rafmagnsverð Elkem fyrir gerðardóm

Núgildandi rafmagnssamningur milli Elkem og Landsvirkjunar er frá árinu 1975.
Núgildandi rafmagnssamningur milli Elkem og Landsvirkjunar er frá árinu 1975. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Landsvirkjun og Elkem Ísland, sem rekur kísilver á Grundartanga, hafa nú framlengt rafmagnssamning til ársins 2029. Fyrirtækin hafa undanfarið verið í samningaviðræðum vegna framlengingar rafmagnssamnings. Núgildandi rafmagnssamningur milli fyrirtækjanna er frá árinu 1975 en verksmiðjan hóf rekstur árið 1979 og gildir samningurinn til ársins 2019.

Í fréttatilkynningu frá Landsvirkjum kemur fram að í núgildandi samningi sé ákvæði sem heimilar Elkem að framlengja samninginn um 10 ár og vísa ákvörðun um rafmagnsverð til gerðardóms.

„Elkem hefur nýtt sér þessa heimild og hefur rafmagnssamningur milli fyrirtækjanna því verið framlengdur til ársins 2029. Fyrirtækin hafa komið sér saman um skipan gerðardómsins sem mun ákveða rafmagnsverðið á framlengingartímanum,“ segir í tilkynningunni.

Elkem er fjórði stærsti viðskiptavinur Landsvirkjunar og er samningurinn um 127 MW af afli og 1.035 GWst.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK