Isavia kært til Samkeppniseftirlitsins

Gray Line vill að Samkeppniseftirlitið stöðvi til bráðabirgða fyrirhugaða gjaldtöku …
Gray Line vill að Samkeppniseftirlitið stöðvi til bráðabirgða fyrirhugaða gjaldtöku Isavia. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line (Allrahanda GL ehf.) hefur sent Samkeppniseftirlitinu kæru vegna þess sem það segir vera misnotkun Isavia á einokunaraðstöðu á Keflavíkurflugvelli. Fer Gray Line þess á leit við Samkeppniseftirlitið að það taki ákvörðun til bráðabirgða um að stöðva fyrirhugaða gjaldtöku Isavia.

Í fréttatilkynningu Gray Line segir að „fyrirhuguð gjaldtaka Isavia af hópferðabílum við flugstöðina sé margfalt hærri en eðlilegt getur talist og stríði alvarlega gegn hagsmunum neytenda.

Tekur Gray Line dæmi um gjald fyrir hópferðabíla á Heathrow-flugvelli í Bretlandi. Þar sé 3.900 kr. gjald fyrir stóra hópferðabíla sem sækja farþega. Isavia ætlar hins vegar frá og með 1. mars næstkomandi að taka 19.900 kr. fyrir hvert skipti sem stór rúta sækir farþega í flugstöðina. Ekki sé tekið slíkt gjald á flugvöllum í Kaupmannahöfn, Billund og Stokkhólmi og á fleiri flugvöllum á Norðurlöndunum, en á Gatwick flugvelli er gjaldið 2.400 kr.

„Ofurgjaldtaka í skjóli einokunar lendir að sjálfsögðu á engum öðrum en flugfarþegum. Gera má ráð fyrir að fargjaldið þurfi að hækka um 30-50% hjá öllum hópferðafyrirtækjunum til að Isavia fái sitt. Farþegar fá ekkert meiri eða betri þjónustu. Isavia tekur þá einfaldlega í gíslingu og heimtar lausnargjald svo þeir komist frá flugstöðinni,“ er haft eftir Þóri Garðarssyni, stjórnarformanni Gray Line í tilkynningunni.

Í kærunni bendir Gray Line á að samkvæmt frétt Isavia sé ætlunin að láta hin háu gjöld á farþega hópferðabíla niðurgreiða samkeppni við erlenda flugvelli um nýjar flugleiðir og flugfélög. Telur Gray Line þessi áform stríða gegn banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu og koma niður á samkeppni í farþegaflutningum til og frá eina alþjóðaflugvelli landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK