Alls voru samþykktar lóðaúthlutanir fyrir 1.711 íbúðir í borgarráði á síðasta ári. Mikill meirihluti úthlutaðra lóða var fyrir byggingarfélög sem starfa án hagnaðarsjónarmiða.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að úthlutað hafi verið lóðum fyrir 1.711 íbúðir í borgarráði í fyrra. Af þeim hafi 1.422 íbúðir verið úthlutað til félaga sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni en þar eru íbúðir fyrir stúdenta, eldri borgara og lágtekjufólk í meirihluta.
Meirihluti lóðanna er ekki á hefðbundnum þéttingarreitum í Miðborginni en uppbygging á þeim öllum mun hins vegar þétta byggð. Haft er eftir Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að 1.711 íbúðir á við heildarfjölda íbúða á öllu Seltjarnarnesi í árslok 2016.
Stærstu úthlutanirnar árið 2017 voru til Félagsstofnunar Stúdenta sem er þegar byrjað að byggja 244 íbúðir við Sæmundargötu í Vatnsmýri, Háskólans í Reykjavík sem mun byggja 370 íbúðir við Nauthólsveg, Bjargs íbúðafélags í eigu verkalýðshreyfingarinnar sem mun byggja 156 íbúðir við Móaveg í Grafarvogi og um 80 íbúðir á tveimur lóðum í Úlfarsárdal, Sjómannadagsráðs sem mun byggja 144 íbúðir við Sléttuveg í Fossvogi og til félagsins Vesturbugtar sem byggir 176 íbúðir við Vesturbugt við gömlu höfnina.
Þá er Búseti að hefja byggingu á 78 íbúðum á lóðinni við Keilugranda 1 þar sem SÍF skemman stóð.