Yfir 200 þúsund gestir á einum mánuði

Yfir 2000 flytjendur komu fram á fjölmörgum sviðum í Hörpu í desember og var helmingur þeirra börn og ungmenni. Gestafjöldinn fór vel yfir 200.000 gesti þennan eina mánuð sem er tvöföldun á milli ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Haldnir voru rúmlega 60 tónleikar auk annarra og fjölbreyttra viðburða. Harpa tók einnig á móti 150 leikskólabörnum sem komu í skipulagðar heimsóknir, Hringskonur héldu sitt árvissa jólakaffi til að safna fé fyrir Barnaspítala Hringsins, Sinfóníuhljómsveit Íslands lék m.a. á opnum tónleikum fyrir flóttafólk og starfsfólk Rauða kross Íslands og Gamlárshlaup ÍR var ræst í Hörpu, segir enn fremur í fréttatilkynningu.

„Eftir að hafa tekið þetta saman er hægt að staðfesta að desember var viðburðaríkasti mánuðurinn frá opnun Hörpu og líklega hafa heldur ekki komið jafn margir fram í húsinu á einum mánuði.

Jólatónleikar og aðrir tónlistarviðburðir af öllum gerðum, heil listahátíð, fundir, móttökur, verðlaunaathafnir, sjónvarpsútsendingar, útskriftir og jafnvel íþróttaviðburðir fylltu húsið frá morgni til kvölds og það var einstaklega ánægjulegt hvað allt gekk vel upp,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK