Sjávarútvegurinn þarf stöðugleika

Þau fyrirtæki sem rata á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki eru metin á grundvelli rekstraráranna 2014-2016. Hljóðið var almennt gott í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum árin 2014 og 2015 en síðan tók að halla undan fæti 2016 og fór Samherji ekki varhluta af því: „Árið 2016 var snúið að því leyti að Rússlandsmarkaður var lokaður, og þar með þriðji stærsti fiskmarkaður Íslendinga – og markaður fyrir tegundir sem er ekki auðvelt að selja annars staðar. Bæði var lokunin verulegt högg og sömuleiðis það að gengi krónunnar styrktist verulega,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Þrátt fyrir áskoranirnar tókst Samherja að komast vel í gegnum árið, og er að þessu sinni í efsta sæti á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki. Þorsteinn Már segir það ekki síst dýrmæta viðurkenningu fyrir starfsmenn Samherja að vera á listanum yfir framúrskarandi fyrirtæki enda árangurinn þeim að þakka.

Misstu mikilvæga viðskiptavini

Rekstrarskilyrðin héldu áfram að versna árið 2017: krónan styrktist enn frekar og á erlendum mörkuðum stóðu verð mikilvægra fisktegunda í stað. Sjómannaverkfallið í lok árs 2016 og byrjun 2017 hafði líka neikvæð áhrif á Samherja, og vara þessi áhrif enn á verðmætari mörkuðum félagsins: „Eftir mikla vinnu hafði okkur tekist að komast inn á verðmæta markaði þar sem gerð er rík krafa um bæði gæði og afhendingaröryggi. Sumir viðskiptavinanna hafa því miður ekki viljað tala við okkur eftir verkfall og ólíklegt að við náum að koma þessum viðskiptasamböndum á aftur. Þetta er dæmi um ósýnilega hluti sem valda okkur skaða löngu eftir að kjaradeilum lýkur.“

Þorsteinn Már er brattur og bjartsýnn en bendir á að markaðurinn fyrir sjávarafurðir sé í mikilli þróun og samkeppnin fari harðnandi á sama tíma og fiskneysla á helstu markaðsvæðum ýmist stendur í stað eða dregst saman. Hann segir marga mikilvæga kaupendur vilja gera langtímasamninga sem binda seljendur til að afhenda vöru í ákveðnum gæðum, á ákveðnu verði, og í því magni og á þeim tíma sem um er samið. „Samherji er tilbúinn í þessar breytingar og við gerum okkur grein fyrir að það eitt að bjóða upp á holla og góða vöru dugar ekki lengur til eitt og sér. Markaðurinn gerir meiri kröfur sem þarf að mæta.“

Óvissan skemmir fyrir

Spurður um áskoranirnar á komandi misserum og árum segir Þorsteinn Már að íslenskur sjávarútvegur þurfi að berjast á tvennum vígstöðvum: á alþjóðamarkaði þar sem þjóna þurfi viðskiptavinum eins vel og frekast er unnt og glíma við stóra og sterka keppinauta, og síðan innanlands þar sem tekist sé á um fyrirkomulag fiskveiða og afnotaréttinn af aflaheimildum sem séu þær grunnforsendur sem atvinnugreininn byggi á:

„Auðvitað dregur það stundum kraft úr fólki að stöðugt skuli þurfa að rífast um íslenskan sjávarútveg. Við verðum að muna að hvers kyns óvissa kemur sér illa fyrir greinina enda verður sjávarútvegurinn að fjárfesta fyrir miklar fjárhæðir til að geta viðhaldið sínum atvinnutækjum og haldið samkeppnisforskoti á síbreytilegum markaði. Það sem greinin þarf umfram allt er stöðugleiki svo að auðveldara sé að gera raunhæfar áætlanir til langs tíma, sækja þannig fram og auka verðmæti.“

Þorsteinn Már bendir líka á að það forskot sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa á erlenda keppinauta fari minnkandi enda sitji þeir ekki með hendur í skauti. „Norðmenn sækja t.d. fram af miklum krafti og hafa allar sömu fisktegundirnar og við nema hvað þeir hafa meira af þeim. Rússarnir hafa líka verið að gera mjög góða hluti og fjárfest mikið í sjávarútveginum. Þeir hafa aðgang að miklu magni af fiski og mörgum tegundum, og virðist hreinlega að margir hafi gleymt hversu skæðir keppinautar Rússarnir eru að verða.“

Þrír nýir togarar Samherja á Pollinum við Akureyri um hádegisbil. …
Þrír nýir togarar Samherja á Pollinum við Akureyri um hádegisbil. Öll skipin smíðuð í Tyrklandi á síðasta ári. Skapti Hallgrímsson

Meðal þess sem Þorsteinn Már kemur auga á sem gæti styrkt stöðu greinarinnar á komandi árum er að skapa sterk vörumerki fyrir íslenskan fisk. „Í dag eiga Íslendingar ekki lengur nein stór eða sterk vörumerki í sjávarútvegi. Við áttum áður vörumerki á borð við Icelandic, en erum búin að selja þau til erlendra aðila.“

Annað sem Þorsteinn Már telur að geti eflt greinina á komandi árum er að íslenskur iðnaður tengdur sjávarútvegi hefur verið að styrkjast mjög samhliða fjárfestingum útgerðar og fiskvinnslu á Íslandi undanfarin ár. „Við vorum til dæmis að fá tvö ný og glæsileg frystiskip afhent í Cuxhaven um þarsíðustu helgi og þar sjáum við fullkominn búnað sem er hugverk fjölda íslenskra fyrirtækja. Við erum stolt af þessum hugverkum sem og sjávarútvegi okkar. Þessi fyrirtæki hafa í samstarfi við íslenskan sjávarútveg þróað eftirsóttar útflutningsvörur á alþjóðamarkaði.“

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK