Hefja sölu lýsis í Bandaríkjunum

Fiskiolíurnar munu líta svona út fyrir bandarískan markað.
Fiskiolíurnar munu líta svona út fyrir bandarískan markað. Ljósmynd/Aðsend

Icelandic Trademark Holding, eigandi vörumerkjanna Icelandic og Icelandic Seafood og Margildi ehf., hefur skrifað undir leyfissamning um markaðssetningu og sölu á fiskolíum undir vörumerkinu Icelandic Fish Oil í Bandaríkjunum. Áætlað er að sala og dreifing hefjist síðar á árinu. 

„Vaxandi áhugi á neytendamarkaði fyrir Íslandi og íslenskum vörum hefur fært okkur stóraukin sóknarfæri og slíkur áhugi hjálpar fyrirtækjum að vera með vörumerki og umbúðir sem vísa sterkt í íslenskan uppruna.“ Þetta er haft eftir Herdísi Fjeldsted, stjórnarformanni Icelandic Trademark Holding, í tilkynningu.   

Sara Lind Þrúðardóttir hjá Icelandic Trademark Holding og Snorri Hreggviðsson, …
Sara Lind Þrúðardóttir hjá Icelandic Trademark Holding og Snorri Hreggviðsson, framkvæmdastjóri Margildis, skrifa undir samning. Ljósmynd/Aðsend

„Með aukinni vitundarvakningu neytenda undanfarin ár á mikilvægi þess að auka við heilbrigði og neyta hágæðalýsis (Omega-3) sem jafnframt uppfylla þau skilyrði að vera framleidd úr hreinum og sjálfbærum hráefnum sjáum við mikil tækifæri í sölu og markaðssetningu okkar hágæðaafurða undir merkjum Icelandic,“ segir Snorri Hreggviðsson, framkvæmdastjóri Margildis, af sama tilefni.  

Margildi sérhæfir sig í framleiðslu lýsis (Omega-3 fitusýra) úr íslenskum uppsjávarfiski. Icelandic Trademark Holding (ITH) er eigandi og þjónustuaðili vörumerkjanna Icelandic og  Icelandic Seafood sem einblína á vörur með íslenskan uppruna og heldur utan um markaðssetningu vörumerkjanna og þjónustu gagnvart leyfishöfum og íslenskum framleiðendum í Bandaríkjunum, Suður-Evrópu og á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK