Áhugi lífeyrissjóða á aðkomu að Arion banka hefur reynst minni en vænst var

Áhugi lífeyrissjóða á aðkomu að Arion banka hefur reynst minni …
Áhugi lífeyrissjóða á aðkomu að Arion banka hefur reynst minni en vænst var. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forsvarsmenn Kaupskila, sem eiga 57% hlut í Arion banka, reyna nú til þrautar að fá sem flesta lífeyrissjóði að eignarhaldi bankans í aðdraganda þess að hann verður skráður á markað.

Í því skyni hefur stjórn Arion banka lagt fram tillögu um 25 milljarða arðgreiðslu út úr bankanum sem renna mun í hlutfalli til nýrra eigenda hans, gangi kaup sjóðanna eftir.

Þrátt fyrir þetta hefur reynst minni áhugi meðal sjóðanna á aðkomu að bankanum en búist var við. Nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum landsins hafa lítinn áhuga á að kaupa hlut í bankanum í aðdraganda skráningarinnar þótt þeir útiloki ekki kaup í honum af því tilefni, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK